Letur : Cézanne Pro

Það hefur greinilega vakið athygli þegar ég sýndi um daginn í hádegisfyrirlestrinum hvernig OpenType getur virkað. Ég bendi á að ég skrifaði eitthvað um Open type hér áður.
Letrið sem ég notaði í sýnishornið heitir Cézanne Pro frá P22. Letrið var upphaflega gert fyrir rúmum tíu árum en er nú komið í þessari OT útgáfu. Tæplega 1300 tákn eru í letrinu, þannig að það er úr allnokkru að spila.
Athugið ef þið ætlið að kaupa letrið að það verður að vera Pro útgáfan og hún tekur í raun inn í sig letrið sem var áður selt í sex einingum.

