Apple : Spotlight afmörkun
Allir sem hafa notað Spotlight til þess að leita að skjölum hafa væntanlega tekið eftir kind–flokkunum sem koma upp eftir því sem leitin heldur áfram. Ef maður er viss um hverrar gerðar skjalið á að vera sem leitað er að er hægt að setja strax síu inn í leitina með því til dæmis að skrifa kind:document og svo leitarorðið í leitarreitinn. Það þarf að skrifa þetta svona, kind:afmörkun án bils á milli.
Sem dæmi leita ég mjög oft að letri og vil gjarnan að Sporlight finni eingöngu letur ef svo ber undir. Ég hef séð að Spotlight er með flokk sem heitir Fonts. Þannig get ég sett inn strax í leitina kind:font bodoni ef ég er að skoða hvað ég á af Bodoni letri eða er að finna hvar það er geymt.
Ég hef enga tölu á því hve margir flokkar gætu verið til þarna í allt, en það má nefna að hægt er að finna hluti sem eru í iCal með kind:event og kind:todo. Eins er hægt að nota kind:pdf, kind:mail svo nokkuð sé nefnt.
Fræðist meira um Spotlight

