Apple : Íslenskt hnappaborð
Þetta er kannski pínulítið villandi fyrirsögn, því mest er talað og skrifað um íslenskt hnappaborð í tengslum við hvort tölvan sýni íslenska stafi eða ekki. Sem sagt Icelandic Keyboard, Unicode og svo framvegis.
Ég ætla hins vegar að leyfa mér að taka aðeins annan vinkil í þetta skiptið. Við erum vel flest með íslensk hnappaborð, þetta sem við notum til að hamra á stafi. Eins notum við alls kyns hnappa á því fyrir sértækar skipanir í forritum, stundum eða oftast með aðstoð músar.
Það er aðeins á reiki hvað fólk kallar þessa hnappa. Til dæmis kalla sumir Optionhnappinn Alt, enda stendur það á flestum borðum nú orðið. Flestir nota ensku orðin á þeim og aðrir ensk og íslensk í bland. Sumir nota jafnvel íslenskt heiti meira í gríni en alvöru og er það hið besta mál. Eins konar sjálfsheilaþvottur vonandi þar sem íslenska heitið verður ofan á fyrir rest.
Mér finnst sjálfsagt að allir viti hvað hnapparnir heita á ensku því að við byggjum svo mikið á upplýsingum á ensku af netinu og blöðum og bókum að við yrðum í vandræðum ef við kynnum þau ekki. Hins vegar er gaman að nota íslensk heiti og orð sem mest í tali og skrifum. Bæði fylgir því smá þjóðremba og stolt. Ekki heldur amalegt að makkanotendur gangi fram fyrir skjöldu í þessum efnum og viðhaldi gamalli hefð. Eins má einfaldlega segja að ef það er satt að við notum aðeins 10% heilans svona yfirleitt þá ætti okkur ekki að verða skotaskuld úr því að læra örfá íslensk heiti í viðbót.
Ég viðurkenni fúslega að ég var ekki með þetta algerlega á hreinu svo ég ráðfærði mig við Steingrím Árnason hjá Apple búðinni. Svo klambraði ég saman þessum myndum hér að neðan sem sýna staðsetningu hnappanna sem um ræðir.
Hér er þá listinn:
- Escape: Hop
- Tab: Dálkhnappur
- Caps Lock: Hástafalás
- Shift: Skipti
- Control: Stjórn, stjórnhnappur
- Option/Alt: Val
- Command: Skipun, skipanahnappur
- Space: Bil, Space bar: bilslá
- Backspace: Bakka, bakkhnappur
- Return: Venda, vendihnappur
- Del/Delete: Eyða
- NumLock: Talnalás
- Enter: Færa, færsluhnappur

Hér eru svo þrír hnappar hægra megin á hnappaborðinu. Ég hafði myndina sér svo ég gæti haft fyrri myndina stærri. Upplagt að prenta þetta út og hafa við hendina.


Vefsíðan þín er meiriháttar og mjög gagnleg. Þessi nýju hugtök og eru ágæt og virka ágætlega. Það er mikið þarfaverk sem þú vinnur hér og þá sérstaklega fyrir nýja Makka notendur. Sjálfur stend ég í því að kenna manneskju á Makka enn kann ekki mikið á hann sjálfur svo þetta er virkilega góð hjálp og ég mun benda fleirum á síðuna þína.