Danskt Ø á röltinu
Nokkur stafatákn færðust um set á hnappaborðinu í nýlegri stýrikerfisuppfærslu. Líklega til að samræma eitthvað einhverju eins og einhver sagði. Kannski í tilefni af yfirtöku Íslendinga á öllu steini léttara í Danmörku.
Hér er það helsta sem ég varð var við:
• Bollan, Bullit er komin á Option + Shift + T
ø Danskt ö er komið á stað sem er ekki svo auðvelt að lýsa því það er svo misjafnt hvaða tákn er á þeim hnappi á hinum mismunandi lyklaborðum fólks. Hnappurinn fyrir ofan Tab, vinstra megin við 1. Og valnappnum, Option haldið niðri líka. Teikningin sýnir þetta.
Stóra Ø er þá sótt með því að bæta Shift við.
@ at merkið er hægt að nálgast núna á gamla staðnum Option + 2 og líka á Option + Q. PC áhrif.
€ Evru merki, Euro er núna bæði á Option + Shift + 4 og á Option + E
Ég reyni oftast að nota íslensk heiti á höppunum og enska heitið með en þegar ég er að tala mikið um þessa hnappa held ég mig við ensku heitin að mestu til þess að textinn fari ekki alveg í rugl.

