AI : Lógósendingar

„Vin­sam­le­gast sendu mér lógóið okkar í tölvutæku fyrir pésé“

Það er eit­th­vað svo kun­nu­glegt við þessa set­ningu, er það ekki? Ég þori ekki að ful­lyrða hve oft í mánuði ég þarf að svara svona tölvupósti. En það er mjög oft.

Það eru nokkur atriði sem eru sameigin­leg með þes­sum pós­tum. Yfir­leitt eru engar upplýsin­gar um í hvað á að nota lógóið, prent eða skjámiðla. Þar af leiðandi ekki upplýsin­gar um hvor sé óskað eftir cmyk eða rgb útgáfu og svona mætti lengi telja.

Ef þetta pir­raði mig væri ég sen­ni­lega löngu hæt­tur í auglýsingabransanum. Þeir sem eru að biðja um þessi lógó á þen­nan hátt vita yfir­leitt ekkert um okkar fag. En ég veit líka harla lítið um þeirra fag. Hvað er til dæmis Ebita? Ég er ekki einu sinni viss um að ég skrifi orðið rétt.

LogotestÞað lig­gur nánast í set­ningunni að man­nesk­jan ætlar að láta lógóið inn í Word eða Pow­er­Point. Og þá þýðir ekkert að senda í cmyk litum. Rgb verður það að vera.

En í hvaða formi? Mér sýnist fle­stir senda lógó í jpg fyrir þes­sar þarfir. Eps er von­laust til þessa. Það er líka um það bil eina sniðið sem menn þekkja á hinum endanum, fyrir utan .doc auðvi­tað. Stóri gallinn við jpg sniðið er hinsve­gar að ef lógóið er sett yfir litaðan bak­grunn sést hví­tur flö­tur í kringum lógóið og þetta verður harla ljótt. Og þá fær maður annað bréf sem útlis­tar vandræðin.

Gif kæmi til greina en hafa verður í huga að gif inni­hel­dur ekki marga liti, er í lágri upplausn og það er svolítið vesen með að tilgreina hvaða litur á að vera glæri liturinn.

PNG-24 sniðið leysir allt þetta. Góð upplausn og hvítt verður glært. Það sem er ekki verra er að Illus­tra­tor getur, ásamt Pho­to­shop, vis­tað lógó beint með því að velja File > Save for Web…

Share