Safari : PDF skjöl
Það er nú ansi misjafnt hvað maður getur ætlað sér þegar maður rekst á pdf skrár á netinu. Það er hins vegar mjög oft sem maður þarf að taka einhverjar ákvarðanir um það. Stundum vill maður rétt kíkja á skrá áður en maður dregur hana til sín, en stundum er maður nógu sannfærður um að maður vilji eiga skránna og vill hala hana niður en skoða hana síðar.
Ef Reader, sem er ókeypis útgáfan af Acrobat er inni á tölvunni eru allar líkur á að skjalið hlaðist inn í Safari í stað þess að vistast inn á tölvuna. Hægt er í flestum tilfellum að hægri smella á hlekkinn og fá val um að ná í skránna. En stundum vill það gleymast og maður situr uppi með nánast frosinn Safari þar til skráin er að fullu komin inn. Hver kannast ekki við þetta?
Acrobat forritin hafa mikla tilhneigingu til þess að taka af manni völdin í þessum efnum og maður getur á köflum pirrað sig eilítið á þessum hægagangi sem skellur á manni.
Það er samt sem áður tvennt sem má benda á sem getur gert lífið eilítið bærilegra í þessu tilliti.
Í fyrsta lagi er til viðbót (plug-in) sem nota má nánast algerlega í stað Acrobat. Það heitir Schubert PDF Browser Plugin og er búið til og viðhaldið af manni sem heitir Manfred Schubert í Þýskalandi. Flestir kalla viðbótina einfaldlega Schubert. Schubert er ókeypis að vissum skilyrðum uppfylltum, það er að segja til einkanota. Það er skemmst frá að segja að þessi viðbót gerir skoðun á pdf skrám mun lífvænlegri og hraðvirkari en með Acrobat. Skráin hleðst í flestum tilfellum sláandi hraðar inn í Safari. Schubert nýtir sér Quartz í stýrikerfinu og skjalið þýtur áfram milli blaðsíðna. Einnig gefur það möguleika á að skipta skjalinu í hluta, frysta hluta úr skjalinu en færa sig á annan stað til frekari skoðunar eða til samanburðar. Og svo er auðvitað hægt að vista skránna niður á tölvuna ef maður vill eiga hana tiltæka.
Í öðru lagi finnst mér rétt að benda á það að það er hægt að auka hraðann á Acrobat Reader til muna með smá breytingu á stillingu sem mörgum sést yfir. Það verður strax mun betra að nota Acrobat til þess að skoða pdf. Margir vilja auðvitað halda sig við Acrobat finnst þeir eru með hann á annað borð.
Þetta er gert með því að fara í stillingarnar, Preferences og þaðan í stillingu sem nefnist Internet. Ok, varstu ekki með forstillt á 56K? Ég var það líka. Breyttu þessari stillingu í LAN og vistaðu svo. Ég er nokkuð viss um að þú finnur töluverðan mun.

