PS : Sjálf­valið lag, Auto Select Layer

PhotoshopÞegar maður vin­nur með mörg lög í Pho­to­shop getur verið mjög þægi­legt að hafa still­inguna Auto Select Layer á. Þetta er sett á þarna uppi vin­stra megin í stjórn­ræ­munni. AutoSelectLayer2Þegar er hakað í kas­sann þarna velst eftir það sjálfkrafa það lag sem maður smellir á í hvert skipti í stað þess að þurfa alltaf að fara í Lay­ers pal­let­tuna og velja það lag sem á að fara að vinna í næst eða færa til.

En svo er það oft, ekki alveg eins oft þó, sem þetta er hrein­lega fyrir manni og hen­tu­gra að afhaka og hand­velja í Layer pal­let­tunni. Allt eftir því hvað maður er að gera. Þetta er svona æ!, ó! stemmn­ing; ætlaði ekki að velja þetta!, eða að maður gleymdi að færa sig á milli laga. Það getur nefni­lega verið ansi þrey­tandi að vera sífellt að skruna upp og niður í Layer pallettunni.

En hvernig væri þá að nota þessa aðferð:

Taktu hakið af Auto Select Layer. Þegar þú ætlar að fara að vinna í ein­hver­jum hluta myn­darin­nar, hel­dur þú niðri slau­funni, stjórnhnapp­num Com­mand og smellir á það sem þú vilt vinna í. Þetta virkar þá alveg eins og tímabundið Auto Select Layer og eins og þú sérð í Lay­ers pal­let­tunni er rétta lagið valið.

Ein önnur leið er að halda niðri Con­trol og styðja með pílunni. Þá kemur upp listi yfir þau lög sem eru þar undir.

Ekki segja mér að ég sé sá síðasti í heiminum til þess að uppgötva þetta!

Share