PS : ID : Lap­par, Con­tact Sheet

PhotoshopCS2Allir þurfa ein­hvern tíma að búa til „kon­takta“ af myn­dum sem þeir eru með í tölvutæku formi. Mér sýnist vel hægt að nota orðið lappi yfir Con­tact Sheet, þótt lappi hafi oftast verið notað yfir lit­lar hál­fun­nar portret­myn­dir. Kon­tak­tar í upprunalegu merkingunni þýðir afrit af filmu og það orð sem maður notar oftast um fyrir­bærið. En hví ekki að nota bara orðið lappi?

Hvað sem því líður er hægt að gera lappa í Pho­to­shop og það verður alltaf að verða auðvel­dara. Farið í File > Auto­mate > Con­tact Sheet II Þar bir­tast ýmsir valko­stir um hvernig verkunin á að vera, myn­dirnar eiga að raðast upp og svo framvegis. Aðgerðin fer svo af stað og á endanum eru eitt eða fleiri Pho­to­shop skjöl opin og bíða eftir að verða vis­tuð í það snið sem við óskum eftir. Þetta virkar mjög hratt og mikill ham­a­gan­gur á skjánum á meðan.

BridgeCS2For­ri­tið Adobe Bridge, sem er eins konar tengistykki milli for­ri­tanna í Adobe Cre­ative Suite pakkanum er með möguleika á að keyra þessa sömu aðgerð af stað. Kos­turinn við að gera það úr Bridge er að við getum séð miklu betur hvernig myn­dirnar líta út sem við ætlum að hafa á lap­panum og við getum líka á ein­fal­dari hátt valið hvaða myn­dir eiga að fara á hann og hver­jar ekki.

Það gæti meira að segja verið að maður hætti bara við að gera lap­pann af því að þarna getur maður séð mar­gar myn­dir samtímis og kannski var pælin­gin eingöngu að skoða myn­dirnar. Þær heita kannski ein­hver­jum raðnúmerum eða hver veit hvað og mun erfiðara að sjá geg­num Pho­to­shop. Bridge er, meðal annara frábærra eigin­leika, arf­taki File Browser sem var áður hluti Photoshop.

En kannski er ætlunin að senda myn­dirnar til viðskip­tavinar og því sku­lum við kíkja aðeins betur á þetta. Til þess að kveikja á lap­paaðgerðinni úr Bridge er farið í: Tools > Pho­to­shop > Con­tact Sheet II Mjög líkt og í Pho­to­shop sjálfu.

En þá kynni ein­hver forvitinn aðláta sér detta í hug að kíkja á hvað er undir hinum liðunum sem eru undir Tools í Bridge. Og viti menn – undir Tools > InDe­sign er svipuð aðgerð sem köl­luð er þar Cre­ate InDe­sign Con­tact Sheets!

InDesignÞegar nánar er skoðað kemst maður að því að þessi aðgerð til þess að búa til lappa í InDe­sign er að mörgu leyti svipuð og að sumu leyti líka tölu­vert þægi­le­gri og gefur auk þess fleiri valkosti sem vert er að athuga. Meðal annars er boðið upp á að láta koma fram stærð skjala og dagset­ningunni hvenær var seinast fik­tað í þeim og auk þess er boðið upp á nokkur lyk­i­la­triði sem teng­jast InDe­sign beint, eins og Page Setup, spássíur og fleira.

Mesta hagræðið er samt sem áður að með því að virkja þetta inn í InDe­sign fær maður allar myn­dirnar í einu skjali í stað mar­gra í Pho­to­shop og eftir­leikurinn er afar þægi­le­gur. Til dæmis getur maður vis­tað létta pdf útgáfu til þess að senda í pósti, prentað út í toppgæðum með einni skipun allar síðurnar og þar fram eftir götunum. Og ekki er verra að það býðst að nota tilbúin tem­plate sem gætu t.d. verið með þar til gerðum haus, blaðsíðutölum, lógói og ég veit ekki hvað. Ein­nig má minna á að ekki er verra að allt letur, heiti myn­danna og þess hát­tar, er lifandi letur en ekki hluti af mynd eins og í Pho­to­shop lap­panum og gefur því alla þá möguleika sem því fylgja.

Share