PDF : Þreytandi pdf valkostir í Office

MacOsX stýrikerfið gefur það fína kosti við vistun pdf skráa að það er hreinn óþarfi fyrir flesta að vera að burðast með þar til gerða pallettu í Office forritunum Word, PowerPoint og Excel.
Vilji maður vista til dæmis Word skjal eða þá Excel skjal sem pdf er einfalt að fara í Print og velja þar að skjalið vistist sem pdf skrá í stað þess að prentast.
Þessar pallettur þvælast fyrir manni og þrýsta skjalinu sem maður er að vinna með niður á skjánum. Maður getur auðvitað lokað pallettunni en hún verður örugglega komin aftur á sinn stað næst þegar forritið er opnað.
En hvernig er hægt að losna við þennan óþarfa?
Það sem kveikir á þessum pallettum eru viðbætur sem eru geymdar í: Microsoft Office 2004/Office/Startup, og þar í undirmöppnum: Excel, Word og PowerPoint. Besta í stöðunni er að eyða ekki þessum viðbótum, heldur búa til nýjar möppur þarna inni, afrita nöfnin á viðbótunum, setja þær inn í möppurnar til geymslu og skíra svo möppurnar sömu nöfnum og viðbæturnar heita.
Þannig væri sem dæmi möppuslóðin fyrir Excel:
Microsoft Office 2004/Office/Startup/Excel/PDFMaker.xla og PDFMaker.xla viðbótin þar inní.

