Letur : Bil milli stafa, Kerning
Þrátt fyrir að flestir þeir sem teikna letur vandi sig við að láta letrið skrifast með jafnri áferð er engu að síður mjög erfitt að láta allt ganga upp. Annað af því helsta sem þeir gera þegar þeir hanna letrið er að reyna að stilla rýmið í kringum hvern staf Metrics þannig að það sé nánast sama hvaða staf maður setur svo niður næst að hann falli vel að og í heildina fái maður jafna og eðlilega áferð á textann.
Það sem á vantar er bætt upp með því að setja svokölluð Kerning Pairs inn í letrið. Kerning Pairs er ekkert sem maður sér í letrinu sjálfu, heldur eru þetta töflur sem faldar eru inni í letrinu og virkjast aðeins þegar tilteknar stafasamstæður eru skrifaðar. Sem dæmi um algengar stafasamstæður eru Va, Ta, Ya og VA. Og reyndar miklu fleiri.
Það er æði misjafnt hvað langt er gengið í að setja þessar samstæður inn og hve margar þær eru. Þegar best lætur skipta þær þúsundum. Svo hefur maður letur sem hafa engar og allt þarna á milli. Stundum rekst maður á tilfelli þar sem stafasamstæðan Va er í fínu lagi en ekki Vá sem dæmi.
Flestir leturhönnuðir sem ég hef séð tala um þetta, telja að þessi hluti vinnunnar við að hanna letur taki yfirleitt ríflega helming tímans. Það er því ekki að undra að einhverjir nenni ekki að fást um þetta.
Það sem enn á vantar upp á að letrið virki við allar aðstæður verður maður að laga sjálfur. Hönnuði skiptir þetta líka mismiklu máli. Það er ekki svo ósjaldan að maður sjái auglýsingar, skilti eða jafnvel bókakápur þar sem engu hefur verið skeytt um stafabilin svo að stingur í augu. Pínu sorglegt en þó satt.
Í Illustrator, InDesign og Photoshop er þægileg hnappaskipan til þess að flýta fyrir sér í þessu.
Í fyrsta lagi, ef maður vill þétta eða gleikka bil milli margra eða allra stafa í setningu er valið það sem maður vill breyta. Þá er haldið niðri valhnappnum, Option, og hægri og vinstri pílurnar notaðar til þess að draga saman eða víkka út. Þetta er kallað á ensku Tracking.
Vilji maður laga Kerning, sem er bil milli einsakra stafa er bendillinn settur milli stafanna og sama skipun notuð, vahnappur + hægri/vinstri píla.
Oft þarf maður að breyta mjög miklu og þá má bæta við hophnappnum, Shift, til þess að tífalda virknina og verður þetta þá Option + Shift + hægri/vinstri píla.
Að auki er rétt að minna á að í forritsstillingunum, Preferences, er hægt að stilla hve langt í einu píluhnapparnir færast við hvert smell.
Þá er bara að ráðast á næstu fyrirsögn og reyna að láta hana verða fallegri með því að fikta svona í henni. Einhverjir kynnu líka að hafa áhuga á að prófa æfingar á vefsíðu University of Delaware, en þar er sérstaklega skemmtileg æfingasíða í þessu. Maður getur tekið fyrir einstök orð og svo borið saman við niðurstöðu sem einhver kennaranna hefur sett upp. Og svo fær maður einkunn. Orðið MEXICO hér fyrir neðan er einmitt úr einni af æfingunum. Kíkið á þetta.


