ID : Leiðar­línur, Guides

IDlogo_guidesLeiðar­línur, Guides, í InDe­sign eru afar gagn­le­gar við umbrot hvers konar. Þær eru ein­faldlega dreg­nar út úr reglustikunni, rétt eins og í Illus­tra­tor og Pho­to­shop.

Algeng vin­nubrögð eru að setja inn leiðar­línur á grunnsíðurnar, Mas­ter þan­nig að þær komi fram á öllum síðum. En svo uppgöt­var maður kannski í miðjum klíðum að gott væri að bæta við einni hér og annarri þar. Sem betur fer er InDe­sign búið mik­lum möguleikum í meðferð leiðar­lína svo að hægt er, ef maður veit af þes­sum möguleikum, að nýta sér þá svo að vin­nan gangi betur og ekki síður að hún verði áfram skemmtileg.

IDguides

Tökum dæmi af nokkrum leiðar­línum sem við viljum bæta við. Segjum að þær liggi eins, t.d. lárét­tar línur. Byr­jum á því að draga þær inn á síðuna þar sem við sjáum fyrir okkur að þær eigi að vera.

Við getum í fyrsta lagi staðsett þær nákvæm­lega í x og y glug­gunum á stjórn­stikunni. Við getum valið þær allar í einu, Com­mand + Option + G og fært þær samtímis til.

Meðan þær eru val­dar saman …

  • getum við slegið inn nýjar tölur í x og y glug­gana til þess að færa þær á tiltekinn stað.
  • við getum allt eins bætt við töluna sem sten­dur í x glug­ganum. Segjum að í y glug­ganum standi 110. Við skri­fum fyrir aftan 110, +5 og sláum á Enter og nýtt mál verður 115.
  • við getum jaf­nað eða dreift línunum með Align og Dis­trib­ute stillihnöppunum.

Meira að segja er hægt að fast­setja hve bilið á milli línanna á að vera mikið (sjá mynd). Þegar við erum búin að stilla línunum upp eins og við viljum hafa þær getum við afritað þær og límt með nákvæm­lega sömu málset­ningum á aðra síðu eða á grunnsíðurnar með skipuninni Paste in Place, Com­mand + Shift + Option + V.

Í View > Grids & Guides eru still­ingar til þess að fela og læsa leiðar­línum. Með því að tvís­mella á lag í Lay­ers pal­let­tunni er hins vegar hægt að stýra þes­sari hegðun í hverju lagi fyrir sig. Það getur verið hen­tugt til þess að fækka tímabundið leiðar­línum á skjánum meðan unnið er í ein­hverju öðru lagi.

IDguidesLayersmell

Nú, svo kemur auðvi­tað að því að maður vill losna við ein­stakar leiðar­línur eða jafn­vel allar. Skipunin Com­mand + Option + G velur allar leiðar­línurnar eins og áður sagði og svo eyðum við. Að geta valið allar leiðar­línurnar á þen­nan hátt getur líka verið gagn­legt við að hreyfa til allar línurnar samtímis við breytin­gar á útliti.

Af fra­man­sögðu sést að leiðar­línur eru að miklu leyti hægt að meðhöndla á svipaðan hátt og aðrir hlu­tir á síðunni og því aðeins spurn­ing um að nýta sér það.

Share