Íslen­ska í Firefox

FIREfox2Hvað ætli sé búið að fjalla oft um það á apple.is hvort íslen­ska eða enska eigi að vera ofar í Sys­tem Pref­er­ences — Inter­na­tional — Lan­guages? Umræðan mun eflaust halda áfram eit­th­vað um sinn. Í það minnsta þar til alfarið verður hægt að hafa íslen­skuna efst — eins og hún ætti að vera.

Málið er hins vegar að það eru ótal for­rit sem virka ekki rétt nema að enskan sé ofar. Sem dæmi má nefna Soft­ware Update, en ein­mitt það for­rit varð til þess að ég set enskuna alltaf ofar í öllum tölvum sem ég set upp. Mér hefur sýnst að for­rit krassi mun síður ef enskan er ofar og almennt hrein­lega heil­sast tölvunum betur.

Annað for­rit sem vert er að nefna er Fire­fox því svo mar­gir spyrja um það. Hann sýnir ekki íslen­ska stafi nema enskan sé ofar, eins skondið og það nú kann að hljóma.

Það er þess virði að athuga hvort málið sé að hafa enskuna ofar ef maður verður var við dular­fulla hegðun í tölvunni.

Share