Apple : Hvar er ég?

HvareregÞað kemur fyrir að maður er að vinna í ein­hverju skjali og er jafn­vel búinn að vista það þegar læðast að manni efasemdir um að maður hafi vis­tað í rétta möppu. Eit­th­vað svoleiðis … Þetta gæti líka verið ein­hver opin mappa síðan fyrir helgi og maður hefur ekki hugmynd um það lengur hver­rar ættar hún er. Þá er ekki verra að geta fengið upplýsin­gar um það án þess að þurfa að fara út úr skjal­inu eða möp­punni og fara að leita og gramsa.

Með því að styðja músar­bendlinum á nafn skjalsins / möp­pun­nar ásamt því að halda niðri skipanah­napp­num, Com­mand, flet­tist niður val­blað sem sýnir alla slóðina.

Í bak­sýn sést Uni­ver­sal merkið sem ég var að leika mér að teikna í Illus­tra­tor. Ég fékk nefni­lega nýju Mac­Book tölvuna í dag!

Share