AI : Úr pílu í textatól

Ég eins og svo margir nota mér í Illustrator að fara úr hvaða tóli sem ég er að nota yfir svarta eða hvíta pílu með því að styðja á skipanahnappinn, Command. Um leið og maður sleppir hnappnum heldur maður áfram í því tóli sem maður var að nota þar á undan. Ég gæfi mikið fyrir að geta gert svipað með dropateljarann.
Aðrir kæra sig ekkert um að kalla fram píluna fram á þennan hátt, heldur smella á A til þess að fá þá hvítu og V fyrir þá svörtu. Það, ásamt því að nota aðra hnappa til þess að flakka milli tólanna, virkar mjög fínt og ættu allir að temja sér að nota eitthvað af þessum fínu skipunum. Það er aðeins eitt, að maður er kominn inn í textatólið pikkast stafir á skjáinn þegar maður slær næst á hnappana og maður verður að „hand“-koma sér í næsta tól. Þá er hentugt að muna eftir Command hnappinum til þess að afvelja textann og halda svo áfram að nýta sér hnappaborðið til þess að þvælast milli tólanna.
Breytingar á textameðhöndlun í nýrri uppfærslum á Illustrator virðast valda því að stundum getur verið svolítið erfitt að koma textabendlinum inn í orð. Þá er hér ein alveg brilljant skipun til þess að snara sér inn í textann:
Ef pílan er valin, þar með tímabundið eins og lýst er hér á undan, tvísmellir maður á textastrenginn. Við þetta hrekkur valið úr pílu í textatól rétt eins og maður hafi þrýst á T og textabendillinn blikkar á þeim stað sem maður smellti. Gæti varla verið betra!
Ég hef séð þó nokkra kvarta undan þessu á netinu en það eru líklega einhverjir sem geta illa hamið ótímabært tvísmell sitt. Hægt væri fyrir þá að stilla smellhraðann í System Preferences.

