AI : Punktalínur
![]()
Margt af því sem ég skrifa hér kemur einfaldlega til af því að ég hef sama dag eða nýlega verið að benda á það sama í vinnunni. Gildir þá oft einu hvort menn eru með langa reynslu eða stutta. Það eru alltaf einhver göt sem má fylla upp í. Og það er ekki eins og ég viti allt saman. Það er alltaf verið að benda mér á eitthvað líka eða rifja upp. Þar til viðbótar rekst maður á eitthvað sniðugt í tímaritum, á vefnum, á bloggi og svo framvegis. Og það er einmitt það sem mér finnst svo skemmtilegt; að uppgötva eitthvað nýtt.
En ég rekst stundum á að einhverjum er að yfirsjást eitthvað sem mér finnst svo sjálfsagt að það hefur ekki hvarflað að mér að tala um það einu sinni en þá er einmitt svo gaman að miðla því.
Hér er til dæmis eitt: Punktalínur í Illustrator. Þegar maður sér svoleiðis línur í bæklingum og auglýsingum eru þær mjög oft aðeins ílangar. Kannski áttu þær að vera svoleiðis… næstum alveg kringlóttir punktar en ekki alveg? Ég held ekki.
Það sem þarf að hafa í huga er eins og sést á myndinni merkt með gulu, rúnnaða enda eins og við er að búast og passa svo að hafa lengd puntkanna 0 pt.

