Mail : Færri kíló

Setjum sem svo að við séum með nokkuð stóra mynd í jpg sniði, kannski svona 10 mb, sem við erum búin að velja fyrir viðskip­tavin. Eða jafn­vel álíka stóra fjöl­skyl­dumynd sem við ætlum að senda kun­ningjum. Ein­fal­dasta mál í heimi er að draga myn­d­ina inn í textaflötinn í Mail og ýta svo á Send hnappinn.

Við vitum að fyrir marga er alger plága að fá svona stóran póst ef aðeins á að skoða myn­d­ina. Þá er vanalega leiðin að opna myn­d­ina inn í Pho­to­shop eða svipað for­rit, minnka myn­d­ina, vista og senda.

Mail getur hins vegar tekið þessa fyrirhöfn af manni. Þegar myn­din þunga hefur verið dregin inn í póstinn birtist neðst á glugga póstsins hve stór myn­din er sem á að senda.

DietMail01

Til hægri er svo spret­th­nap­pur sem á sten­dur Actual Size.

Þegar stutt er á hnap­pinn eru gefnir upp þrír valmöguleikar ef myn­din er stór en færri ef Mail telur ekki þörf á að minnka myndina.

Í þessu dæmi valdi ég Small og myn­din fer úr 7,8 mb í 142 k!

Þokkalega góður megrunarkúr.

Share