John Baskerville 1706 – 1775
Eins og lesa má úr ártalinu hér að ofan, hefði John Baskerville orðið 300 ára í ár. Þann 28. janúar nánar tiltekið. Nánar er hægt að kynna sér ævi og störf Baskerville með því að fletta upp í Google en til gamans má geta þess að að öllum líkindum nefndi Sir Arthur Conan Doyle, höfundur Sherlock Holmes, Baskervillehundinn eftir þessum fræga leturhönnuði, en Doyle bjó um tíma í Birmingham.
Birmingham, sem var heimaborg Baskerville ætlar að helga honum október með ýmis konar atburðum og sýningum sem upplagt væri að kíkja á ef menn eiga leið þar um á þeim tíma. Ef leiðin liggur ekki þangað væri í staðinn upplagt að opna Baskerville letur og skoða hvort það væri ekki flott í næsta verk.
Með einfaldri leit á MyFonts.com má finna næstum hundrað afbrigði af Baskeville letri. Útgáfurnar eru all nokkuð mismunandi en sérstaklega flottar frá Storm, Linotype og URW. Prufan hér að neðan er URW Baskerville Old Face D.


