AI : Línuþykktir í Illustrator
Það hefur lengi verið þannig í Illustrator að þegar gerð er lína, t.d. rammi utan um auglýsingu að þykknar í báðar áttir út frá rammanum, inn og út. Þetta getur og hefur stundum orsakað það að það klippist af rammanum þegar auglýsingin birtist í blöðunum. Þar, svo sem í Mogganum, er hólfið sem auglýsingarnar fara inn í svo nákvæmt að ekki er svigrúm fyrir þessari þykkingu á línunni út. Því verður línan aðeins helmingur þess sem hún átti að vera og getur einfaldlega horfið. Helsta ráðið til þess að forðast þetta hefur verið að hafa rammastærðina eilítið minni en hún ætti að vera. En hver nennir því?
Í nýjustu útgáfu Illustrator hefur verið bætt við möguleika á að stýra því í hvaða átt línan þykknar. Á myndinni er sýnt hvernig þetta lítur út. Þetta er mikið stækkuð eins punkta lína eins og sjá má. Stillingin er í Stroke palettunni. Rétt er að benda á í leiðinni að hægt er að breyta línu í fyllt form í valblaðinu: Object/Path/Outline Stroke

