Adobe : Proxy komið út
Adobe hefur alla tíð staðið í alls kyns útgáfustarfsemi meðfram framleiðslu forrita. Í eina tíð gáfu þeir út blað sem hét Colofon. Ég náði mér í eintök í Radíóbúðinni heitinni. Mér fannst þetta blað algert æði. Prentuð á hvítan og þykkan dagblaðapappír í lit og risastórt. Ég held að ég eigi blöðin ennþá einhvers staðar niðurgrafin. Blöðin voru uppfull af alls kyns fróðleik sem maður gleypti í sig enda var þetta í þá daga sem net voru aðallega notuð til þess að veiða fisk en ekki fréttir.
Colophon leið undir lok og einhverjum árum síðar gaf Adobe út Adobe magazine. Þeir dreifðu því eins og svo mörgu öðru dóti aðeins í Bandaríkjunum og Kanada. Mér tókst þó með harmkvælum að svíða út áskrift og fékk örfá eintök áður en það blað gaf upp öndina.
Nú í seinni tíð er sambærileg útgáfa í PDF sniði og kallast Proxy. Þetta er auðvitað í takt við það sem er að gerast hjá fyrirtækinu. Meðan Colophon var og hét snérist allt um prent og PostScript, en í dag er PDF og netið miðlarnir sem þeir veðja mest á.
Nýjasta eintakið af Proxy er sem sagt komið út. Ágætis innlegg en er auðvitað nokkuð sjálfhverft. Það er hægt að nálgast það (15mb) á vef Adobe.

