Viðgerðar­for­rit

Nú þegar flen­sutíma­bilið nál­gast hápunkt vetrarins er ekki úr vegi að kíkja á hvaða meðul virka best á makkann. Þá á ég við vélina sjálfa. Allir vita að vélar geta bilað og þær munu gera það fyrr en síðar. Vaninn er að vélar bila þegar maður má síst við því — eða það finnst manni að minnsta kosti.

Sú var tíðin að Nor­ton var nánast eina svarið við meinum sem hrjáðu makkana. Nor­ton Util­i­ties var ágætt svo langt sem það náði en dugði samt illa á mar­gar vil­lur. Mín reynsla var á endanum sú að ég notaði Nor­ton meira í for­varnir en í viðgerðir. Þetta er svona eins og að fara með bíl í reglule­gar skoðanir sem taka sinn toll en eru þó skárra en að fá einn stóran skell. Syman­tec sem fram­leitt hefur Nor­ton tilkyn­nti á síðastliðnu ári að þeir myndu hætta að þróa viðgerðar­for­ri­tið og útgáfa 8.0.3. er sú síðasta í röðinni og virkar ekki á Tiger. Mar­gir voru enda búnir að fá nóg af for­rit­inu og farnir að snúa sér að öðru. En hvað getur komið í staðinn?

DiskWarriorUm það leyti sem Nor­ton Util­i­ties stóð í útgáfu 5 kyn­ntist ég viðgerðafor­riti sem heitir DiskWar­rior frá AlSoft. Skemmst er frá því að segja að á einu ári lagaði þetta for­rit fleiri vélar en Nor­ton hafði gert í fimm ár á undan. DiskWar­rior kostar eina 80 dol­lara en þeim peningum er vel varið. Það sem gerir DiskWar­rior er í raun aðeins eitt, en jafn­framt ein­stakt, en það er að renna yfir svokallað Direc­tory, en það er skráin yfir það hvar allt er á harða diskinum. Síar burt það sem er ekki í lagi og býr til nýja Direc­tory skrá sem svo er skipt út í lok aðgerðarin­nar. Vil­lur í B-Tree, sem Nor­ton réði aldrei almen­ni­lega við og Over­lap­ping files, þegar fleiri en ein skrá á diskinum er skri­fuð á sama stað, hverfa ásamt fjölmör­gum öðrum vil­lum sem ekkert annað viðgerðafor­rit kann að laga. Þetta er það for­rit sem allir ættu að eiga á vísum stað. Þeir sem vinna mikið á vélarnar sínar og eru með mikið streymi skjala inn og út af vélinni ættu að hafa vaðið fyrir neðan sig og renna DiskWar­rior yfir vélina sína svona mánaðar­lega sem fyrir­byg­g­jandi ráðstöfun.

Önnur for­rit sem hug­gulegt er að hafa líka er Tech­Tool Pro frá Micro­mat og Disk Genius frá ProSoft Engineering.

TechToolProTech­Tool Pro er afar fjöl­hæft viðgerðafor­rit. Það pró­far alls kyns hluti í tölvunni svo sem diska, minni, FireWire tengi, USB tengi og þar fram eftir götunum og Defrag­ment, sem raðar saman gag­nahlu­tum sem skri­fuð eru víðsve­gar á diskinn þegar lítið rými. Ein­nig er boðið upp á að mynda eDrive sem er hlu­tadiskur (par­ti­tion) með for­rit­inu og lág­marks stýrik­erfi sem nota má til þess að ræsa vélina frá. Þá setur for­ri­tið inn S.M.A.R.T vörn (Self Mon­i­tor­ing Analy­sis And Report­ing Tech­nol­ogy), sem ley­fir for­rit­inu að fyl­g­jast með vélinni í bak­grunni og vara mann við ef eit­th­vað er farið að hegða sér undar­lega. Tech­Tool Pro tekur við þar sem Nor­ton hætti og fer yfir stóran hluta af því sem Nor­ton gerði og slatta í viðbót. Tech­Tool Pro er afar auðvelt í notkun og krefst ekki nein­nar þekkingar á innviðum tölvun­nar til þess að nota. Ein­faldlega virkar.

DriveGeniusDisk Genius er jafn­vel enn flot­tara for­rit. Þetta for­rit leg­gur hel­dur meiri áher­slu á harðdiskana sjálfa og gögnin á þeim. Meðal annars er hraðvirk afritun á milli diska og full eyðing trú­naðar­gagna. Þeir eru með ágætis saman­burðartöflu á vefnum sínum en stilla henni að sjálf­sögðu upp sér sem mest í hag. Engu að síður fróðlegt. Disk Genius er lík­lega ekki fyrir alla. Það fer inn á svið sem sem krefst þess að maður þekki dálítið til hug­taka og það fæst við nokkuð sérhæfða hluti en er mjög gott í þeim. Disk Genius ætti að vera í vasa hvers þess sem vasast mikið í tölvumálum.

Eins og sést hér á undan er það DiskWar­rior sem ég myndi taka með mér á eyðieyju ef ég mætti bara taka með mér eitt viðgerðar­for­rit. Við sku­lum samt ekki gleyma einu for­riti en það er DiskU­til­ity sem fyl­gir stýrik­erfinu og er í Applications/Utilities. Sama for­rit og maður notar til þess að laga heim­ildir (Repair Per­mis­sions — muna að renna því í gegn líka að minnsta kosti mánaðar­lega!) Til þess að nota for­ri­tið til þess að gera við tölvuna þarf að ræsa tölvuna af innset­ningardiski ker­fisins. Þegar töl­van er uppræst er hægt að fara í valseðil og velja for­ri­tið þaðan og keyra það af stað. Þetta ætti að vera skyl­d­u­aðgerð áður en nýtt kerfi er sett inn, sérstak­lega ef töl­van er ekki ný. For­ri­tið er nokkuð öflugt en þó rekst maður stun­dum á vil­lur sem það getur ekki lagað og þá kemur DiskWar­rior til hjálpar.

For­ritin þrjú sem eru talin að ofan þarf öll að ræsa frá öðrum diski en ræsidisknum, oftast frá geis­ladiski. C-hnappnum er haldið niðri þar til töl­van ræsist og þá er hægt að hefja aðgerðir. Þar sem ég hef á mínum snærum um þrjátíu makka (og tut­tugu og fimm pc) þarf ég að eyða mik­lum tíma í að halda niðri c-hnappnum. Sérstak­lega er það DiskWar­rior sem tekur lan­gan tíma í að ræsast af diski. Ég hef þess vegna búið mér til spennu úr bré­fak­lemmu sem tekur að sér að halda hnapp­num niðri og hvílíkur munur!. Ég smelli inn mynd af grip­num fljótlega.

Share