Þjóðráð
Hérna er spennan eða klemman sem ég bjó mér til þess að halda niðri c-hnappnum þegar ég þarf að ræsa tölvu af geisladiski. Mér leiðist alveg sérstaklega að eyða tímanum í að halda hnappnum niðri og finnst þetta algert happaþing. Að maður tali nú ekki um verkinn í fingrinum eftir að halda honum á happnum í svo sem fimm mínútur meðan DiskWarrior ræsir upp bilaða tölvu. Eins og sést er þetta búið til úr bréfaklemmu af stærri gerðinni, 7–8 cm að lengd.
Annað tól og einfalt líka nota ég á iMac tölvur sumar sem spýta út úr sér diskum af of miklum krafti. Það er óþarfi að taka mynd af því eða teikna upp. Það er einfaldlega blað eða plastræma, svona 30 cm að lengd, sem ég lími á rammann á tölvunni með límbandi, þannig að myndist lykkja sem grípur diskinn. Stillt þannig að diskurinn sé næstum laus en detti ekki alveg út á gólf.

