MacWorld Expo 2006 SF
Ég er nýkominn af MacWorld í San Francisco með stuttri viðkomu í New York. Þotuþreytan liðin hjá. Það var frábær stemmning á þessari sýningu enda tólin sem kynnt voru ekki af verri endanum. MacBook Pro (frekar óþjált nafn) og iMac með Intel Inside. Ég tók að sjálfsögðu myndir af gripunum en apple.com er með miklu betri myndir svo ég er ekki að trana þeim hér.
Eins og ég nefndi í fyrsta MW pistlinum nenni ég aldrei á Keynote. Maður sér þetta allt rétt hálftíma eftir að því lýkur og ég þarf ekki endilega að sjá Steve Jobs með berum augum. Ég gekk samt nánast á hann þegar ég gekk inn í sýningarhöllina og sá mér leik á borði að taka þá mynd af honum. Troðningurinn í kringum hann var samt nokkur og hann varinn af tveimur lífvörðum. Ekki að makka menn vildu hann feigan, heldur vildu margir berja hann augum. Myndin er afskaplega slöpp en ég læt hana samt fylgja hér með.
Ég eyddi fyrsta deginum í að skoða sýninguna og heimsækja básana. Það er hreint frábært að geta hitt fólkið frá fyrirtækjunum og láta sýna sér dótið og geta spurt strax út í þá hluti sem fyrir ber.
iLive og iWorks voru auðvitað þau forrit sem mesta athygli vöktu enda fjallað um þau í inngangsræðu Jobs og svo kynnt af krafti á risatjaldi í Apple básnum. Þessir pakkar eru þeir fyrstu sem munu nýta sér Intel örgjörvann að fullu, en fyrir þá sem fá sér nýju vélarnar verður árið eflaust mjög spennandi þegar forritin munu eitt af öðru koma með Intel uppfærslur. Ég náði mér í þessa pakka en þó ekki fyrr en ég kom til New York, enda tugþúsundir óðra sýningargesta sem heimsóttu Apple Store í San Francisco til þess að verða sér út um forritin og þau seldust upp á fyrsta degi.
Nýjungarnar eru fjölmargar í forritunum og of langt upp að telja hér. Sjálfur nota ég mest Keynote og iPhoto af þessu og hlakka til að fara að nota af alvöru. Það er alltaf svo mikið að gera hjá mér eftir að ég hef verið fjarverandi að ég er rétt að komast til að skrifa núna, hvað þá að fara að gamna mér í forritasukki.
Ekki hafði ég heldur tíma til að stunda beina blaðamennsku frá San Francisco. Fyrst var ég í smá vandræðum með að koma í gang internettengingu á hótelinu og svo loksins þegar það var komið biðu mín verkefni í póstinum sem ég þurfti að sinna þaðan í hasti. Annars finnst minnst er á hótelið, þá eru þeir með þann ágæta sið að bjóða upp á vínglas í fordyrinu milli fimm og sex og að auki vínkynningar á föstudögum og laugardögum.
Eins og sést á þessari mynd hér að neðan var ævinlega farið að rökkva þegar ég kom út af sýningunni og fyrirlestrunum sem ég sótti og ég sá ekki neitt af San Francisco frekar en í fyrra, nema helst þetta torg, Union Square sem er milli hótelsins og Moscone Center.


