MacWorld Expo 2006 SF
MacWorld sýningin, MacWorld Expo 2006 hefst í næstu viku í San Francisco. Fyrir mér er þetta einn af bestu og skemmtilegustu tölvutengdu atburðum hvers árs og frábært að hlaða þar rafhlöðurnar fyrir komandi misseri.
Ég hef ekki alveg töluna á þeim sýningum sem ég hef sótt. Sennilega ellefu eða tólf sýningar. Umfang MacWorld sýninganna hefur heldur minnkað með árunum en að mínu mati hafa gæðin hins vegar aukist. Er það í takt við tímann; fyrirtæki sem kosta starfsmenn á sýningar af þessu tagi ætlast til þess að ferðin sé góð fjárfesting en ekki skemmtiferð. Þannig hef ég alltaf litið á það líka en það vill bara svo til að mér finnst þetta sömuleiðis arfa skemmtilegt þótt ég láti á engu bera.
Það sem mér finnst vera að batna með hverju árinu eru þeir fyrirlestrar sem boðið er upp á. Þeir eru upp til hópa haldnir af fólki sem veit hvað það er að segja og sem veit að það er að tala við marga sem vita næstum því jafn mikið og það sjálft. Svo eru auðvitað svona álfar eins og ég sem vita næstum ekki neitt. Þess vegna er þetta eins og ströng kennslustund og manni líður stundum eins og maður hafi ekki lært heima. en nokkur Eureka! eru hverrar krónu virði.
Sýningin sjálf er nóg fyrir einn til tvo daga þótt maður gerði ekkert annað. Nóg er af smá sýnikennslu á básunum og nóg að skoða. Einnig hittir maður augliti til auglitis fólk frá fyrirtækjunum sem maður hefur verið í sambandi við eða og getur spurt beint um ýmsa hluti og skoðað.
Af einhverjum ástæðum hef ég aldrei nennt að fara á svokallað Keynote. Keynote er opnun sýningarinnar og síðustu árin hefur Steve Jobs oftast troðið upp og sýnt nýjasta dótið. Það vantar eitthvað element í mig varðandi persónudýrkun og ég væti ekki buxurnar yfir frægu fólki, sama í hvaða liði það er. Ég get alveg eins horft á þetta á stórum skjá klukkutíma síðar.
Það er óneitanlega nokkur spenna núna um hvort eða hvaða dót verður kynnt. Koma vélar og hverjar þá með intel örgjörva? Verður kynnt margmiðlunarmiðstöð? Það er í það minnsta ljóst að ekkert má gefa eftir í velgengni iTunes/iPod æðisins. Þetta kemur bara í ljós og ég held alveg vatni yfir þessu. Mér er alveg sama hvaða örgjörvi er í vélunum svo lengi sem þær keyra MacOs stýrikerfi, eru hraðvirkar og tiltölulega fallegar svo manni súrni ekki í augum við að vinna á þær.


