Font­Lab Studio

FLSlogoFont­Lab er loksins komið út í útgáfu 5. Nafn­inu hefur reyn­dar verið breytt í Font­Lab­Stu­dio. Árið hefur verið mjög fjörugt hjá Font­Lab en fyrirtækið hefur ungað út einum tólf stórum uppfærslum og/eða nýjum letur­for­ri­tum á þessu ári. Ég nota þetta for­rit talsvert til alls kyns viðgerða á letri og smá rökkurvinnu við mitt eigið letur (þetta sem er í haus­num á síðunni).

Font­Lab noten­dur skrifa gjar­nan á póstlista til þess að kvarta og kveina eða leita sér aðs­toðar. Þar hefur í nær eitt og hálft ár verið í gangi kön­nun á því hverju menn vildu breyta í síðustu útgáfu eða bæta við. Er styst frá því að segja að orðið hefur við miklu af þes­sum óskum og meira til. Annars er hægt að læra heilmikið af því að lesa þessa pósta og ein­nig eru leiðbeiningar frá fyrirtæk­inu sjálfu um ýmis atriði sem þörf er á að skýra betur þótt hand­bókin sé um 700 blaðsíður.

Svo aðeins lítið eitt sé upp talið þá hafa:

  • teikniáhöldin verið þróuð og bætt í þau
  • pren­tun og pró­fun á letri bætt
  • auto­trac­ing bætt við
  • Open­Type og Uni­code fengið betri stuðning

Það er líka gaman að sjá að það er búið að hreinsa út ýmsar ambögur sem komu til af því að for­ri­tararnir og höfun­dar for­ritsins eru rús­sar og ekki þeir alhörðustu í enskunni. Væn­le­gast er að kynna sér breytin­gar­nar á vef­síðunni því ég yrði í allan dag að endurskrifa það hérr. En þa er greini­legt að það er nánast búið að endurg­era for­ri­tið. Font­Lab er ekki ódýrt for­rit en hægt er að fá léttvæ­gari útgáfu sem heitir Type­Tool og dugir fles­tum til að byrja með. Síðar er svo hægt að uppfæra ef óskað er.

Share