Fontog­ra­pher fyrir MacOsX

FOGiconLöng bið er loksins á enda: Fontog­ra­pher 4.7 er kominn út. Nú er loksins hægt að nota það án þess að ræsa upp Clas­sic. Fontog­ra­pher hefur verið langmest notaða for­ri­tið til leturhön­nunar á mökkum. Þótt Font­Lab hafi tekið við þessu hlutverki af Fontog­ra­pher hafa mar­gir sak­nað ein­faldleikans sem Fontog­ra­pher býður upp á. Fontog­ra­pher var upphaflega skri­fað af Alt­sys, þeim sömu og bjuggu til Free­Hand. Teik­nun í for­rit­inu í vec­tor hefur alltaf verið svipuð og var í Free­hand 3.

Hel­stu nýjun­gar fyrir utan að virka á MacOsX eru stuðningur við Euro stafinn og afrita/líma stuðningur við nýjustu útgá­fur af Illus­tra­tor og Free­Hand. Ein­nig er búið að hreinsa út þó nokkuð af vil­lum sem eftir stóðu þegar þróun for­ritsins hætti í útgáfu 4.1.5.

Fontog­ra­pher lítur út og virkar á mjög kun­nu­gle­gan hátt og ekki laust við að mann kitli pínulítið í mag­ann við að sjá þen­nan gamla kun­ningja. Forsýn, pre­view er það hel­sta sem hefur ekkert bat­nað. Prufu er hægt að nál­gast hér.

Share