ID : Umbrotsskjöl færð milli Quark og InDesign
InDesign getur opnað Quark skjöl og vistað þau í sitt eigið snið. Þessi viðsnúningur er furðu góður en gallinn er sá að Quark skjalið þarf að vera vistað sem Quark 4 skjal. Þetta þýðir að ef skjal sem á að færa yfir er unnið í Quark 6 þarf fyrst að vista sem Quark 5 skjal, opna Quark 5 forritið og vista svo niður sem Quark 4. Þetta er frekar leiðinleg leið en ef fólk þarf oft að gera þetta munu menn væntanlega koma sér upp uppsetningu þannig að Quark 5 sé inni á vélinni tilbúið til notkunar.
Mun þægilegri leið er að nota viðbót (plug-in) frá Markzware, Q2ID. Þessi viðbót bætir við InDesign þeim eiginleika að geta opnað hvaða Quark skjal sem er alveg upp í útgáfu 6 án nokkurs annars undirbúnings. Gildir þá einu hvort skjalið var gert í Quark á makka eða pc. Verðmiðinn er settur á 199 dollara sem eflaust skilar sér hratt til baka fyrir þá sem oft þurfa að standa í svona millifærslum.
Markzware býður einnig upp á ID2Q, sem breytir InDesign skjölum í Quark skjöl. Ég held að Markzware sjálfur hanni lógóin fyrir forritin og útlit þeirra og ég get ekki hugsað mér að setja neitt af því dóti hérna með.

