Draga texta yfir á skjáborð og laga með ClipEdit

CLIPeditSú var tíðin að ég var með að jaf­naði milli tvö og þrjúhun­druð skjöl á skjáborðinu hjá mér. Þetta var þegar kerfi 9 var upp á sitt besta. Þegar tían mætti á staðinn vandi ég mig af þessu og skip­u­lagið er í hel­dur skárra ástandi í dag.

Áður en ég tók til í mínum ranni vann ég nokkrar kepp­nir á net­inu fyrir hræði­le­gasta skjáborðið án þess að hafa neitt fyrir því annað en að senda inn skjáskot. En svo ég finni til ein­hverja afsökun, þá var ein af ástæðunum fyrir því að skjáborðið var svona hjá mér var að það var svo auðvelt að draga hvað sem er yfir á það, myn­dir, vef­föng, textabrot og hvað eina. Þegar ég fór að vinna á tíunni hélt ég eins og mar­gir aðrir að þessi drag and drop eigin­leiki hefði verið fjarlægður.

Ég ætla ekki að fara að rusla skjáborðið hjá mér aftur, en ég komst nýlega að því að það er innbyggt hik sett inn í þen­nan eigin­leika í mör­gum for­ri­tum eins og t.d. Safari. Ef maður velur texta og styður pílunni í eina sekúndu á valið er hægt að draga tex­tann hvert á land sem er. En ég vara ykkur við: Skjáborðið verður fljótlega ein rus­lahrúga.

Svo kemur ein­hvern tíma að því að maður vill fara að kíkja á hvað er í öllum þes­sum klip­pum á skjáborðinu og jafn­vel flokka þau. Nöfnin eru oft ekkert sér­lega upplýsandi. Þá er ómetan­legt að hafa við hen­d­ina snill­dar­for­rit sem heitir Cli­pEdit. Með því er hægt að opna klip­pibú­tana laga til inni­haldið og endurskíra og ýmis­legt annað. Af ein­hverri ástæðu hafa þeir sem skri­fuðu for­ri­tið ákveðið að taka ekki lengur neitt fyrir það, en ég keypti það fyrir mör­gum árum — reyn­dar fyrir lítið fé.

Share