ID : Orðskiptingar –góðar fréttir
Öðru hverju rísa upp umræður um prentvillupúka og orðskiptiforrit fyrir makkann. Þetta er oftast í tengslum við breytingar sem hafa orðið á stýrikerfi eða forritum og stundum er það af því að kostur sem var fyrir hendi áður er horfinn.
Ekki löngu eftir að Adobe Creative Suite kom út, bauðst mið– og austurevrópuútgáfa af pakkanum, kölluð CE. Í þessum pakka er boðið upp á orðskiptingu fyrir þau lönd sem heyra undir þetta svæði og þar á meðal íslenska orðskiptingu í InDesign og Illustrator — og undarlegt nokk, Photoshop líka. Margir freistuðust til þess að kaupa þessa útgáfu, sem var töluvert dýrari en standard pakkinn.
Því miður reyndist þessi orðskipting ekki skila þeim væntingum sem til hennar voru gerðar og ýmsir gallar aðrir gallar eru á útgáfunni sem gerir pakkan svo til ónothæfan. InDesign er þó skásta forritið í pakkanum og auðvitað það sem reynir mest á orðskiptinguna. Illustator CE er hins vegar að mínu mati algerlega ónothæft vegna galla og sá versti er að nánast allar tengingar við Option hnappinn eru óvirkar. Sem betur fer fylgdi standard útgáfan með í pakkanum þannig að ég notaði hana.
Nú horfir svo við að mörg málasvæði sem voru í CE eru komin inn í standard pakkann af CS2; Pólland, Rússland, Tyrkland, Tékkland svo nokkur séu nefnd — en auðvitað ekki Ísland. En það átti enginn von á því, var það?
CE pakkinn verður eflaust útbúinn í útgáfu CE2 en ekki gengur það nú hratt að koma honum á koppinn. Spennandi verður að sjá hvort Ísland verði þar inni ásamt Litháen og Lettlandi, Búlgaríu og Albaníu og nokkrum öðrum málasvæðum. Þó geri ég engan veginn ráð fyrir því.
Hins vegar eru góðar fréttir líka. Fyrirtæki nokkurt í Hollandi, Woodwing er með á lokastigi islenskan orðskiptipakka fyrir InDesign. Orðskiptipakkinn er kallaður Smart Hyphen. Einnig munu fyrirtækið bjóða upp á starfsetningarpakka sem kallaður er Smart Speller.
Þar sem þeir eru ekki tilbúnir með framleiðslulínuna er ekkert enn um þetta á vefsíðu fyrirtækisins en óðum styttist í þetta. Verð er ekki fastsett enn, en er áætlað í kringum 350 evrur fyrir Smart Hyphen. Ég kem með meiri fréttir af þessu um leið og mér berast þær.

