Dashboard brellur
Var eitthvert almennilegt íslenskt heiti komið á Dashboard? Held ekki. Margir hafa losað sig alfarið við Dashboard vegna þess hve mikið minni widget, þessi litlu smáforrit, taka. Þar sem ég hef þokkalega mikið minni á mínum vélum leyfi ég Dashboard að vera.
Mér hefur fundist mörg af þessum widget-um mjög gagnleg eða einfaldlega skemmtileg. Mér finnst til dæmis æði að fá Dilbert í gegnum Dashboard með iComic. Eina annað widget sem ég er með sem telst til afþreyingar er SuperBrain, widget útgáfa af gamla Mastermind spilinu. Ég er nú samt að fá aðeins leið á því en hætti mér ekki í SuDoku í bili.
Hins vegar eru mörg gagnleg widget sem ég nota næstum daglega svo sem Gengjan, íslensk gengistafla með útreikningi, og lítið fyrirbæri sem heitir ladytax. Ladytax nota ég til þess að reikna virðisaukaskatt í báðar áttir. Fullt er af öðrum sem ég náð mér í en nota sjaldan.
Dashboard er mjög þægilegt að kalla fram með F12 hnappnum en hérna eru nokkrar ábendingar sem margir hefðu eflaust gaman af að prófa.
Í stað þess að smella á F12, prófaðu að halda hnappnum niðri í smástund. Þetta birtir Dashboard bara tímabundið og widget-in hverfa um leið og hnappnum er sleppt. Hentugt til dæmis ef maður ætlar bara rétt að sjá hver hitinn er úti. Ekki þó fyrir þá sem eru ekki með Eject hnapp á hnappaborðinu því þá opnast bara CD skúffan.
Prófaðu að halda niðri Shift um leið og þú smellir á F12. Flott þegar maður er að sýna Windowsfólki dásemdir makkans. Þetta hægir á innkomu Dasboard. Prófaðu í leiðinni að nota Shift með Expose hnöppunum F9, F10 og F11.
Til þess að breyta stillingum á widget-um err vaninn að ýta á plúsinn. Prófaðu að smella þess í stað á slaufu + — (bandstrik).
Ef þig langar til þess að hafa widget á skjáborðinu og alltaf opin án þess að þurfa alltaf að smella á F12 geturðu farið í Terminal forritið og skrifað þetta þar:
defaults write com.apple.dashboard devmode YES
Smellir svo á Enter hnappinn og skráir þig út úr tölvunni. Þegar þú ert komin(n) inn aftur geturðu dregið þau widget sem þú vilt hafa á skjáborðinu þangað út og ræst þau.

