AI : Textalímingar yfir í Mail ofl.
Af og til þarf maður að ná út texta út úr Illustrator eða FreeHand vegna þess að textinn í skjölunum er sá nýjasti og mest yfirlesni. Þetta var svo auðvelt hér á árum áður en nú er þetta aðeins flóknara.
Í Illustrator er til dæmis ekki hægt að líma textann beint í Mail. Í stað texta kemur mynd af textanum eða hreinlega ekki neitt. Ef skjalið er svo sent áfram kemur í ljós að það er hengt á það fylgiskjal, oftast tómt pdf skjal. Það verður því að fara í kringum þessa annmarka.
Í Illustrator eru tvær leiðir helstar:
Í fyrsta lagi er hægt að fara í File : Export… og velja að vista sem Text Only. Þennan texta má svo opna í TextEdit forritinu, afrita það aftur þar og líma svo í Mail.
Í öðru lagi má líka afrita textann og líma í Word, Nisus eða sambærileg ritvinnsluforrit og afrita svo aftur textann úr þeim yfir í Mail. Einnig má notast við TextEdit forritið en þá bregður svo við að textinn límist inn sem mynd nema valið sé sú aðferð að fara í Edit > Paste and Match Style. Aðeins er misjafnt milli forrita hver hnappaskipunin er, en oftast eitthvað á þessa leið: slaufa+option+shift+V eða slaufa+shift+V.
Síðan er textinn afritaður aftur og límdur í Mail.
Paste and Match Style skipunina er gott að leggja á minnið því að það geta komið upp tilfelli í öðrum forritum þar sem þetta nýtist líka. T.d. ef maður vill afrita möppu– eða skjalanöfn í Finder og líma það inn í önnur forrit. Ef þessi aðferð er notuð koma nöfnin, ef ekki koma myndir af möppunum.
Í FreeHand á Tiger er nauðsynlegt að notast við Klemmuspjaldsbreytinn sem fylgir íslenskustuðningum fyrir Tiger svo allt gangi upp, því að Freehand notast enn við íslenskt Roman lyklaborð.
Sem betur fer er fullt af forriturum sem eru að búa til lausnir fyrir alls kyns smá vandamál sem við þurfum að glíma við. Eitt af þessum forritum er Plain Clip (ókeypis), skrifað af Carsten Blüm. Forritið er notað þannig að maður afritar texta, t.d. í Illustrator og ræsir svo Plain Clip. Plain Clip slekkur sjálft á sér strax aftur. Plain Clip hreinsar snið af textanum á klemmusplaldinu (Clipboard) og eftir þetta er hægt að líma textann í Mail.

