Font Explorer X frá Linotype
Linotype er að koma með á markað skæðan keppinaut við Suitcase og FontAgent Pro, Font Explorer X. Ég skrifaði í nokkru hasti fyrir stuttu pistil um FontExplorer og ákvað að endurskrifa hann eftir fengna reynslu af forritinu og bæta við lítils háttar leiðbeiningum.
Forritið kemur formlega út innan skamms en sú útgáfa sem er í boði núna er ókeypis FC útgáfa, Final Candidate, það er að segja, eins konar forsýn á það sem er að koma í endanlegri útgáfu. Endanleg útgáfa verður ókeypis líka. Margir halda ekki vatni yfir þessu forriti og ekki að ástæðulausu.
Fyrir það fyrsta er forritið ókeypis sem fyrir marga væri eitt sér nóg til þess að opna augun. Þegar litið er inn í forritið kemur í ljós að hér er um að ræða mjög öflugt leturstýriforrit. Það er nokkuð ljóst að forritið jafnar keppinautana og gerir jafnvel enn betur í mörgu tilliti. Af nokkrum sem mér finnast mikilvægir vil ég helst nefna:
Sjálfvirk kveiking, Auto activation, er á letri í öllum forritum nema InDesign og Quark, en forritið hleður viðbótum inn fyrir þau forrit ef óskað er.
Smart Set. Ef maður er með mikið af letri er gráupplagt að nýta sér þetta nýja fyrirbæri. Fyrir utan Set sem flestir munu gera er hægt að búa til sett sem setja letur í Set eftir gefnum forsendum og jafnframt bæta í það sett ef letri er bætt inn í forritið og uppfyllir þessar sömu forsendur. Sem dæmi gæti maður búið til Smart set sem héti Helvetica og í það færi allt letur sem það nafn kæmi fyrir í. Ef enn einni gerð af Helvetica er bætt in í FontExplorer X myndi hún fljúga þar inn.
Flestir sem nota mikið letur hafa búið sér til eitthvert kerfi til þess að halda utan um letrið. Margir raða letrinu eftir stafrófsröð en aðrir, eins og til dæmis ég, raða því eftir framleiðanda. Og jafnvel svo í stafrófsröð þar undir. Font Explorer X er því alger himnasending fyrir fólk eins og mig því það leyfir manni að draga letrið eins og því er raðað í Finder í möppuvís inn í hliðargluggann, Source List. Athugið að til þess að svona möppur myndist í hliðarglugganum þarf að halda slaufu niðri meðan dregið er. Annars myndast bara sett. Hreint út sagt frábært.
Innsetning
Innsetning á FontExplorer X er afar einföld. Aðeins þarf að draga forritið inn í Application gluggann og ræsa það svo. Við ræsingu í fyrsta skipti er rennt í gegnum nokkra glugga og maður þarf að samþykkja eða neita nokkrar aðgerðir. Það er aðeins breytilegt hvað margir gluggar birtast, en það fer eftir uppsetningu á tölvunni. Til dæmis fjölgar um einn ef forritið sér að maður er að nota Suitcase eða FontAgent Pro.
Það eru sem mig grunar að flestir muni staldra við. Sú fyrri er hvort maður vilji láta forritið Manage Fonts, stússast með letrið og ef svarið er já, hvort það eigi að gerast með afritun eða með flutningi, Copy eða Move. Ég mæli með því að svarið sé já og að svo sé valið Copy (alls ekki smella á Move!).
Í framhaldi af þessu þarf að velja hvar lendingarstaður letursins verði en forritið stingur upp á að það sé á svæði notandans. Það er ágætur staður svo lengi sem tölvan sé notuð af einum notanda.
Það sem gerist eftir þetta er að forritið nær í það letur sem maður velur að það sjái um og afritar það inn í stafrófsmöppur. Við leikum okkur svo með letrið í forritinu með allt raðað eftir okkar hentugleik og þurfum ekkert að hugsa meira um þessa möppu annað en það að henda henni ekki óviljandi.
Hin spurningin er hvort forritið eigi að hreinsa út úr kerfisletursmöppunum. Persónulega geri ég það ekki á meðan á innsetningunni stendur heldur geri það eftir að ég er búinn að koma forritinu af stað. Það er lang besta leiðin til þess að forðast alls kyns árekstra í leturmálum að það sé sem minnst af letri í kerfismöppunum. Og að forrit eins og FontExplorer X fái að halda utan um sem mest af letri tölvunnar og þar með talið kerfisletrið. Þessi aðgerð er mjög einföld og þægileg í Suitcase og er því lýst hér. Í FEX (FontExplorer X) þarf að fara öðruvísi að þessu og þessi leið er fín:
a. Í FEX, farðu í Tools : Clean System Folder fonts… Þú veitir nauðsynleg leyfi og aðgerðin hefst.
b. Endurræsa vélina. Afar mikilvægt.
c. Nú hefur myndast mappa á skjáborðinu sem heitir FontsRemovedfromSystem220905. Inni í henni eru þrjár möppur með letri í og heiti þeirra segja til hvaðan það kom.
d. Færðu þessa möppu til dæmis þannig að hún sé við hliðina á leturmöppunni þinni. Þú mátt alveg breyta nafninu á henni og ef aðal leturmappan þín heitir Letur mætti þessi nýja gjarnan heita Letur 2 eða Letur kerfis, þannig að hún sé nálægt aðal möppunni. Segjum bara Letur kerfis.
e. Opnaðu nú FontExplorer X. Haltu niðri slaufunni á lyklaborðinu og dragðu möppuna Letur kerfis yfir í hliðargluggann á FontExplorer.
f. Nú er letrið sem var fjarlægt úr kerfinu alltaf tiltækt til þess að kveikja á því, letur fyrir letur.
g. Kíktu inn í þessar möppur og finndu HelveticaNeue og kveiktu á því. Apple forritin iCal, AddressBook og fleiri verða að hafa það tiltækt. Eins eru þarna fjöldi letra sem iWorks pakkinn biður um. Við vitum þá í það minnsta hvar letrið er.
Það voru nokkur orð í fyrri pistlinum um villur sem ég var að glíma við. Er skemmst frá því að segja að það hefur allt leyst og Linotype sendi mér tölvupóst þar sem þeir tilkynntu mér að það væri búið að laga villur sem ég benti þeim á og myndu þær ekki vera að kvelja okkur í næstu útgáfu.
Það eina sem ég hef ekki fundið út úr og sakna aðeins er að ekki virðist boðið upp á að virkja letur tímabundið, það er að letrið verði ekki lengur virkt eftir ræsingu. Vonandi bætir Linotype þeim eiginleika við.
iTunes fyrir letur — ekkert minna!
Það ráku allir upp stórum augum þegar þeir uppgötvuðu að FontExplorer verður ókeypis. Samlíkingin við iTunes er augljós og forritið býður upp á kaup á letri innan þess. Fyrst í stað verður einungis letur frá Linotype en heyrst hefur að þeir muni fljótlega bæta við letri frá öðrum. Linotype mun áreiðanlega fá kostnaðinn við forritið margfalt til baka með sölu á letri og ef dæma má af iTunes munu ólögmæt viðskipti með letur minnka þegar stendur til boða letur á lágu verði, stykki fyrir stykki. Má maður kannski biðja um iPod fyrir letur með góðum skjá til þess að dást að letursafninu sínu?
Það verður spennandi að sjá hver mótleikur Suitcase og FontAgent Pro verður. Þeir yrðu að semja við einhvern stóran leturframleiðanda ef þeir ætla að leika þetta eftir.

