ID : PDF gerð fyrir prentun
Mjög margir hafa farið að nota InDesign í stað Quark og enn aðrir sem farnir eru að nota InDesign hafa aldrei notað Quark. Svo lenda menn gjarnan í því að þegar komið er að því að senda verkið í prentun eru menn kannski ekki vissir um hvaða stillingar á að nota við að gera PDF skrána.
Nokkrar tilbúnar stillingar fylgja með tilbúnar til notkunar. Af fenginni reynslu af svona tilbúnum stillingum t.d. í Photoshop og öðrum forritum er rétt að staldra aðeins við. Persónulega finnst mér alltaf best að ráðfæra mig við fólkið sem starfar í prentsmiðjunum og er alla daga að glíma við að koma í gegnum vélarnar skjölum sem viðskiptavinir þeirra hafa verið að púsla saman. Og þegar maður er sjálfur kominn með þetta í sæmilegt lag er voða gaman að hlusta á sögur af þeim uppákomum sem það er að lenda í.
Einn megin galli við þær stillingar sem í boði eru í ID er að þær eru stilltar miðað við PostScript 1.4. Án þess að fara um of út í tæknilegu hliðina á þessu atriði þá er PostScript 1.3 málið. Það tryggir meðal annars að Transparency sem notað er (hálf glærir litir) skili sér rétt. Þetta atriði er merkt í stillingunum Compatablity: Acrobat 4 (PDF 1.3). Það er auðvitað lítið mál að breyta þessu í stillingunum en til þess að vera alveg viss búum við til okkar eigin, byggðar á upplýsingum frá landsins fróðustu mönnum í þessum efnum.
Gott er að hafa við hendina að minnsta kosti tvær stillingar. Önnur þarf að vera skotheld fyrir prentun, bæði á fyrir dagblöð og gæðapappír. Rétt er að láta skurðarmerki myndast í leiðinni fyrir ID. Hin þarf að mynda léttar PDF skrár til þess að senda viðskiptavinum til skoðunar og prentunar á skrifstofunni hans eða til þess að koma fyrir á vefþjónum.
Við skulum þá renna í gegnum stillingarnar og myndirnar sýna hvað þarf að vera í hverjum reit. Við skulum kalla þessar stillingar PrentID_HQ_240805 og PrentID_LQ_240805. PrentID á báðar svo þær sitji hlið við hlið og merkt ID svo við vitum að þær eru hugsaðar fyrir InDesign; HQ og LQ fyrir High Quality og Low Quality og svo dagsetning.
Ef þið farið eftir þessum leiðbeiningum mæli ég með því að þið notið þessa dagsetningu sem ég nota hér. Það verður þægilegra seinna ef upplýsingarnar verða uppfærðar.
Vindum okkur þá í að stilla.
Ég miða hér við ID CS2 en það er mjög auðvelt að setja inn alveg samsvarandi upplýsingar í ID CS. Í ID CS (InDesign CS) er farið í File : PDF Export Presets : Define en í ID CS2 er farið í File : Adobe PDF Presets : Define.
Hér sést í glugganum öll þau sett sem fylgdu forritinu og (þetta er mikilvægt:) í CS2 birtast allar PDF stillingar sem kunna að vera notuð í öðrum forritum CS2 pakkans, svo sem stillingar sem notaðar eru með Distiller. (Sjáið efst í glugganum er svokölluð ríkisstilling sem ég er með inni í Distiller) PDF stillingarnar birtast sem sagt í kross milli forritanna og gagnast þeim öllum. Það þýðir að það sem við erum að fara að gera mun birtast í Distiller og virkar þar fínt. Samt sem áður er sniðugt að gera sömu stillingar sérstaklega fyrir Distiller, þá merkt PrentAA_HQ og hafa ekki skurðarmerki með, ef vaninn hjá okkur er til dæmis að gera alltaf Illustrator .eps skjöl með skurðarmerkjum.
Nú, við smellum því næst á New….
General.
Þetta er fyrsti glugginn og væntanlega þurfum við að breyta þeim stillingum sem koma upp.
Fyrst af öllu skulum við gefa stillingunni nafn: PrentID_HQ_240805.
Setja Compatibility á: Acrobat 4 (PDF 1.3).
Gott er að setja í Description reitinn eitthvað lýsandi um stillinguna. Ég set: PDF fyrir alla alvöru prentun, dagblöð og prentsmiðjur. Skurðarmerki.
Ekki skal haka við neitt annað í þessum glugga. Hins vegar gæti vel hugsast að þegar þið eruð komin í gegnum þetta að þið sjáið not fyrir einhver afbrigði af þessu, t.d. að bæta við Thumbnail valmöguleikanum. Fínt, en ég mæli með því að þá verði gerð alveg ný stilling fyrir það en þessari stillingu verði haldið algerlega óbreyttri svo hún sé alltaf klár til notknunar. Og ekki gleyma að setja eitthvað í Description sem segir manni í hverju munurinn er fólginn.
Compression.
Setjið allar tölur inn eins og hér er sýnt. Í CS2 er boðið upp á Automatic (JPEG) en í CS myndum við nota JPEG.
Marks and Bleeds
Hér er hakað við Crop Marks og að þau séu 3 mm frá brún skjalsins. Að neðan er blæðing sett í 3 mm sem er algengast.
Höfum þetta svona og pælum í valmöguleikum síðar.
Output
No Color Conversion og Don’t Include Profiles. Hreinleikinn í fyrirrúmi. Við viljum ekki að einhver vitleysa sem jafnvel einhver annar gæti hafa sett í skjalið fari að skemma fyrir okkur.
Advanced
Hér er einn af mikilvægustu liðunum. Fonts: Subset fonts when percent of characters used is less than: 100%. Þetta þýðir að letrið sem notað er er fellt inn í PSD skránna, Embedded. Það þarf því ekki að útlína letrið eins og það er kallað.
Svo setjum við Transpareny Flattener á [High Resolution].
Summary
Samantekt á því sem við höfum stillt.
Þá skulum við demba okkur strax í að búa til LQ gerðina því við viljum ekki kaffæra póstinn hjá viðskiptavininum á fyrsta degi. Förum í gegnum sömu glugga svo að þetta verði alveg skýrt.
Byrjum á því að smella á New….
General
Köllum lággæðastillinguna PrentID_LQ_240805.
Í Description setti ég: PDF lággæða, til sendingar á kúnna. Engin skurðarmerki.
Einnig er hér bætt við Optimize for Fast Web View.
Compression
Fyllið út reitina eins og hér er sýnt. Hér er meðal annars frábrugðið frá HQ stillingunni að svart hvítar myndir eru pakkaðar saman.
Marks and Bleeds
Hér fjarlægjum við skurðarmerki. Sömuleiðis setjum við 0 í alla reitina varðandi blæðingu. Ekki þarf að hafa neina blæðingu í svona stillingu. Og ekki er verra að hafa þetta sem bremsu ef fyrir mistök yrði sent lággæða skjal í prentun. Þá munu prentararnir spyrja: Hvar er blæðingin? Skurðarmerkin?
Output
Í LQ stillingunni höfum við þetta: Convert to Destination, Document RGB og Don’t Include Profiles. Lággæða skjöl eru mest skoðuð á skjá eða sett á vef og því er þetta haft svona.
Advanced
Hér setjum við Transpanency Flattener á [Medium Resolution] og höfum Subset Fonts… á 100% áfram.
Nú erum við komin með stillingar sem ganga fínt í 99,9% af þeim PDF skjölum sem við þurfum að búa til og allar prentsmiðjur ættu að vera sáttar við.
Best er fyrir óvana að fara algerlega eftir þessum leiðbeiningum og búa til tilbrigði seinna þegar þeir eru farnir að átta sig á því um hvað þetta snýst.













Mundirðu breyta þessum upplýsingum (uppfæra?) fyrir InDesign CS3? Hvað með Acrobat 8 stillinguna t.d. (PDF 1.7)?