Hefjast þá skriftir að nýju
Jæja, þetta dugir ekki öllu lengur. Sumarleyfið mitt búið fyrir nokkru og alvara hversdagsleikans blasir við berskjölduð. Ég er mest hissa á því hve margir hafa kíkt á síðuna meðan ég var í burtu.
Tæpur helmingur heimsókna er frá Bandaríkjunum, sennilega vegna þess að síðan hefur komið upp í leit að orðum eins og Photoshop eða viðlíka. Þetta setur pressu á að fara að þýða eitthvað af því sem ég hef verið að skrifa hér enda eru margir að leita að stuttum lýsingum á algengum málum.
Ég hafði því miður engan tíma til þess að skrifa eða þýða í fríinu en reyni að bæta úr nú þegar.

