Skjáskot fyrir alla

Ég nota næs­tum hvern einasta dag skjáskot, það er að segja, myn­dir af því sem sést á skjánum, heilum glug­gum eða hluta. Ein­nig, og það er það sem ég nota mest, er að taka t.d. skot af því sem ég er að vinna í Illus­tra­tor og líma það inn í Pho­to­shop til staðset­ningar. Eins nota ég skjámyn­dir í Illus­tra­tor í sama tilgangi.

Skjámyn­dir eru bara í 72pt upplausn, en þegar maður er búinn að teygja myn­d­ina á layer í Pho­to­shop er hún furðuskýr þótt stækkunin sé margföld.

Ég hef tekið eftir því að mar­gir kunna bara eina aðferð eða tvær til að taka skjámyndir.

Sla­ufa + Shift + 3 tekur mynd af öllum skjánum og vis­tar niður á skjáborðið (Desktop).

Sla­ufa + Shift + 4 bir­tir kross sem maður getur dregið utan um það sem maður vill og vis­tar á skjáborðið. Þetta kunna allir. Allir þurfa að kunna þessa til viðbótar:

Sla­ufa + Shift + Stjórn (Con­trol) + 4 birtist kross sem maður getur dregið utan um það sem mann van­tar mynd af, en í stað þess að vista myn­d­ina á skjáborðinu fer hún ekki lengra en á klem­mus­p­jaldið (Clip­board) og er tilbúin til límin­gar hvert á land sem er, t.d. inn í Pho­to­shop. Þá los­nar maður við óþarft mil­listig og drasl á skjáborðinu.

Mér finnst þes­sar aðfer­ðir mjög þægi­le­gar, sérstak­lega sú síðast­nefnda. En svo eru ein­staka til­felli þar sem þetta dugir ekki alveg til. Svo sem þegar maður er að útbúa kennsluefni um for­rit eða svoleiðis og þarf skot af valseðli (Menu). Við þessu er ódýrast að nota lítið for­rit sem fyl­gir stýrik­erfinu, Appli­ca­tions > Util­i­ties > Grab. Grab er ágætt svo langt sem það nær en ekki mjög þjált. Skot af valseðli þarf að taka á tíma og ég er ekki alveg rétti maðurinn í það. Aðeins of mikið vesen.

Snaps Pro X leysir þen­nan vanda og miklu meira. Kostar auðvi­tað meira eða tæplega 29 til 69 dol­lara eftir því hvaða útgáfa er keypt. Öflu­gasta útgá­fan getur tekið Quick­Time af hreyfingum á skjá. Mér finnst þeim peningum vel varið en það verður hver að meta fyrir sig. Þetta for­rit gefur kost á það vista hel­stu snið sem notuð eru í teikni­bransanum, .pdf, .jpg, .tif, psd… og svo framvegis.

Og meira um sniðin. Skjáskot sem eru vis­tuð á skjáborðið eru í .pict sniði í kerfi 9. Í fyrstu útgá­funum af X (10.0–10.3 vis­tuðust skjáskot alltaf sem .pdf skrár. Í Tiger breyt­tist þetta enn og nú eru þau í .png. Ég hef lengi verið hal­lur undir pdf og sakna þess smá að hafa ekki skotin í því sniði.

Af ein­hverri ástæðu hefur Apple látið hjá líða að segja frá því að það er hægt að breyta þessu í það snið sem maður óskar. Kannski finnst þeim við hafa nóg á okkar hön­dum. Hvað sem því líður getur maður breytt þessu með því að opna Ter­mi­nal og skrifa:

defaults write com.apple.screencapture type pdf

Öftustu þrír stafirnir geta verið pdf, png, jpg, tif, bmp, psd eða pct.

En það sem er jafn­vel enn betra er að save­scree­nie gerir þetta fyrir mann á ein­fal­dan hátt.

Share