Álits­gjöf opin frá 10.30 til hálf ellefu

Nú er ég búinn að hafa font.is með þessu formi í einn og hál­fan mánuð eða svo, þótt font.is hafi verið til í tvö ár… kannski þrjú.

Samkvæmt upplýsingum um vefinn frá 1. til og með 6. júlí hafa 40 stakir aði­lar heim­sótt síðuna það sem af er júlí og meðal­tal heim­sókna 17 á dag. Þetta er stöðugt að aukast og mér finnst það þokkalegt miðað við að efnið er enn sem komið eingöngu á íslen­sku og því verulega lítill hluti heim­sins sem getur lesið þetta og svo er efnið líka nokkuð sérhæft.

Það er í sjálfu sér ekkert kepp­nis­mál fyrir mig að fá mar­gar heim­sóknir. Frekar að þeir sem koma og lesa hafi gagn og kannski gaman af því að lesa þetta. Það er stef­nan að þýða að minnsta kosti hluta greinanna yfir á ensku. Meðal annars er það vegna þess að mikil eftir­spurn er eftir efni eins og þessu sem hér er boðið upp á og mar­gir að leita eftir hjálp og upplýsingum. Ég býst við að það verði með þeim hætti að ég noti sömu dags­set­ningu á þýðin­gar­nar og íslen­ska útgá­fan er svo enska efnið fari allt í archive en poppi ekki upp á aðalsíðu.

Í upphafi ákvað ég að hafa ekki opið com­ment hér til þess að byrja með. Aðal­lega af því að ég hef svo mikið að gera alltaf og óttast að þurfa að bæta á mig vinnu við að svara eða útskýra frekar það sem ég hef skri­fað. Það þýðir hins vegar það að ég hef ekki hugmynd um hvernig fólki líkar. Ég myndi þig­gja að fólk sendi mér línu í tölvupósti og segði mér sína skoðun og eins ef ein­hver­jar óskir eru um ein­hver skrif eða þess háttar.

Skri­fið á sigurarm[at]islenska.is

Sumar­ley­fið mitt er alveg að skella á en ég skrifa þó eit­th­vað í því. Af nógu er að taka.

Takk fyrir heimsóknirnar.

Share