PS : Sameina lög í eitt nýtt lag

Stun­dum van­tar mann nokkra lay­era í Pho­to­shop sameinaða en vill eiga þá staka til seinni nota. Fle­stir hafa fundið sér ein­hverja leið til þess að gera þetta enda eru fjöl­mar­gar leiðir til þess.

Ein leiðin og sú sem mar­gir notast við er að búa til Layer set, og tvö­falda það síðan. Geyma annað til síðari nota en fletja hitt.

Önnur lengri leið er að gera: Dupli­cate Layer og svo New. Þá myn­dast nýtt skjal í nákvæm­lega sömu stærð með þes­sum layer. Svo dre­gur maður þá sem maður vill yfir í nýja skjalið og fle­tur út. Fly­tur svo inn í gamla skjalið aftur. Ég hef oft notast við þetta. Sérstak­lega ef ég er að vinna skjal í CMYK en þarf að nota fil­tera sem aðeins virka í RGB á ein­hverja lay­era. Eða þá líka ef mig van­tar að koma einum eða fleiri layerum í gráskala og svo yfir aftur.

Þriðju leiðina er ekki vit­laust að nota, eina sér eða í bland við hinar. Hún er svona:

PSLayers01A. Hafðu kveikt á þeim layerum sem þú vilt sameina (án þess að glata).

B. Veldu nú þann efsta af þeim sem á að sameina.

C. Slaufa+Option (Alt)+Shift+E

Við þetta myn­dast nýr layer ofan við þann sem valinn var. Þetta er í það minnsta hraðvirk leið sem gott er að kunna. Kannski maður ætti að skrifa svolítið meira um flýtiskipanir?

Share