Sudtipos fuentes
Sudtipos er ekki verri staður en hver annar til þess að byrja leit að letri. Sérstaklega þegar maður er að leita að einhverju fersku og vönduðu skriftarlegu letri með smá retro tilfinningu.
Sudtipos er vefur nokkurra hönnuða í Agentínu og hafa þeir gert nokkur letur undanfarin ár. Svo vill til að ég þekki aðeins til Alejandro Paul, sem er sá sem heldur úti veffsíðunni. Þegar kreppan mikla skall á fyrir nokkrum árum í heimalandi hans sá hann möguleikana á að selja letur á netinu í gegnum aðila eins og myfonts og veer.com. Enda gekk það eftir og nú liggja eftir þá félaga nokkur fjöldi sérlega skemmtilegra fonta sem hafa notið þó nokkurra vinsælda víða um heim. Þá hafa þeir einnig komið í stafrænt form ýmsum gömlum letrum sem má sjá í Blumlein Scripts.
Chocolate er nýlegt frá þeim og það heitasta í augnablikinu ásamt Downtempo. Persónulega er ég veikur í að kaupa Plumero og Sudestada.
Alejandro sendi mér katalóginn í pósti í fyrra sem er svo sem ekki í frásögur færandi nema fyrir það að það var svo allt öðruvísi lykt af pappírnum og prentsvertunni en maður á að venjast hér í Evrópu. Ég held að það sé hægt að nálgast PDF útgáfu af leturbæklingnum þeirra á netinu og ég set inn linkinn hér um leið og ég næ í skottið á Ale.
Athugið líka mjög athyglisverða linka sem eru á síðunni.

