Íslensk hönnunarumfjöllun á ensku
Það er athyglisvert hversu Japönum og Dönum vegnar vel þegar sú staðreynd er höfð í huga að þeir búa ekki yfir neinum náttúruauðlindum sem heitið getur. Svo dæmið sé tekið af Dönum, hafa þeir meðal annars lagt mikla áherslu á að tengja Danmörku við góða og vandaða hönnun af öllu tagi. Ég bind miklar vonir við að þegar við erum komin yfir mesta álfylleríið að ráðandi aðilar taki þessar þjóðir sér meira til fyrirmyndar og tefli fram náttúruvæum afurðum til útflutnings svo sem hugbúnaði, listum og hönnun. Fyrsta skrefið er að kynna fyrir umheiminum hvað er að gerjast hér á klakanum.
Ragnar Freyr Pálsson, sem mörgum er að góðu kunnur, meðal annars fyrir icelandicnationalteam.com heitna, leggur sitt af mörkunum og hefur ýtt úr vör nýju vefftímariti, Form Islandia til kynningar á íslenskri hönnun. Hann skrifar textann á alþjóðamálinu ensku og svo langt sem mín enskukunnátta nær, sýnist mér hann skrifa þetta bara ansi hreint vel.

