Nöfn skjala og mappa
Í stýrikerfi X er hægt að nefna skjöl og möppur allt að 256 bókstöfum. Þetta er nokkuð sem maður er búinn að vera að horfa Windows geta gert í nokkur ár. Þótt stýrikerfið geti gert þetta er Adam samt ekki kominn alla leið í Paradís.
Sum forrit… mörg forrit öllu heldur, eru ekki tilbúin í að taka þátt í þessu og er því enn um hríð affarasælast að halda sig við gömlu regluna um 31 staf sem hámark í nafni.
Ekki nóg með það. Fyrir þá sem eru að nota Adobe forritin (hver er það ekki?) ættu aukin heldur að sleppa því að nota þ, ý og ð í nöfnum og halda sig helst við enskt stafróf yfir höfuð. Harði diskurinn og allar möppur að skjalinu sem þú ert að nota þurfa að vera laus við íslenska stafi. Villur sem getur orðið vart við, ef það er ekki, er meðal annars að skjöl vilja ekki opnast og einnig að Place skipunin virkar ekki rétt í Illustrator, myndir vilja ekki linkast, heldur embeddast.
Og ein regla í viðbót: Ekki nota skástrik í nöfnum og ekki punkt sem fremsta staf í nafni.
Þá er að nefna að skjöl sem voru skírð með íslenskum stöfum á Os9 eiga til að vilja ekki skrifast yfir á tölvu með stýrikerfi OsX.
Reyndar er að einfaldlega þannig að það er best að halda sig við enskt stafróf þótt ekki sé skemmtilegt að gefa þannig ráð. Tilfellin sem geta komið upp eru fjölmörg, svo mörg að þessi grein myndi ná niður á gólf ef ég skrifaði um það allt.
Ef þú situr uppi með mikið af skjölum sem þú vilt eða þarft að breyta nöfnum á er upplagt að spara sér handavinnuna með því að kaupa FileBuddy. Frábært forrit í alla staði til að hafa við höndina.

