AI : Lyk­laborðsskipanir í ólagi

AI logoblom Eitt af því sem gerist við uppfærslu upp í Tiger er að lyk­laborðsskipanir virka ekki í Illus­tra­tor. Þetta gerist í hvert skipti sem Illus­tra­tor er ræs­tur, hvort sem um er að ræða Illus­tra­tor 11 eða 12, CS eða CS2. Við hér á Íslandi erum ekki ein um að eiga við þen­nan vanda.

Þótt þrey­tandi sé, er mjög ein­falt að leysa þetta en laus­nina þarf að endur­taka í hvert skipti sem Illus­tra­tor er ræs­tur. Sem sagt, best að vera ekkert að slökkva á honum.

Það sem maður gerir er:

A. Skiptu yfir í US fánann í val­röndinni (menu). Ekki skipta í US Extended, bara þen­nan venjulega.

B. Veldu ein­hvern hlut í verk­inu sem þú ert að vinna í. Gerðu ein­hverja flýtiskipun, t.d. Sla­ufa — C.

C. Skiptu nú yfir í íslen­ska fánann aftur og allt er komið í lag.

Málið snýst um að Illus­tra­tor er eit­th­vað pir­raður í fyrstu yfir Uni­code lyk­laborðum. Adobe hefur sent út leiðbeiningar um þetta, en þeim láist að nefna að það er ekkert mál að skipta svo yfir í Uni­code lyk­laborð, eins og til dæmis það íslenska.

Viðbót 15.05.2007: Þetta var lagfært í seinni uppfærslu á stýrikerfinu.

Share