Safari : Bæta við Debugger
Það kemur stundum fyrir að vefsíður birtast ekki rétt í Safari. Sundum veit maður ekki hvernig síðan á að líta út og þá skiptir það sennilega litlu máli. En í önnur skipti sér maður strax að eitthvað er ekki eins og það á að vera og spurningin er: Hvað er hægt að gera í þessu?
Fyrir það fyrsta er það þannig að ótrúlega margir vefir eru hreinlega ekki hannaðir fyrir aðra vafra en Internet Explorer á PC vélum. Skiljanlegt að sumu leyti í ljósi þess hve margir nota þann vafra og markaðsyfirburða Microsoft. Töluvert hefur reyndar saxast á þessa yfirburði með tilkomu Firefox vafrans, sem bæði er fyrir Makka og PC. Mig minnir að ég hafi séð að hann sé orðinn yfir 15% af kökunni. Eitt ráðið er sem sagt að ná sér í Firefox og athuga hvort hann geri eitthvað betur en Safari. Firefox er reyndar alveg ágætis vafri, hraðvirkur mjög og allir ættu að hafa hann á makkanum sínum ásamt Safari.
Í öðru lagi er hægt að athuga hvort Safari geti ekki hermt eftir öðrum vöfrum svo sem Internet Explorer fyrir PC. Þetta dugar bísna oft. En hvernig er það gert?
Þessi möguleiki er fyrir hendi í Safari en birtist ekki í forritinu eins og það kemur af kúnni. Það sem þarf að gera er eftirfarandi:
Opnaðu forritið Terminal. Það er í Applications | Utilities. Ef þú hefur aldrei notað það áður er rétt að taka það fram strax að þegar maður lýkur aðgerðum í Terminal, skrifar maður orðið: exit og svo slær maður á Enter hnappinn.
Hvað um það. Núna skrifar þú inn í terminal:
defaults write com.apple.Safari IncludeDebugMenu 1
Þú getur alveg eins afritað þetta og límt svo inn í Terminal.
Næst slærðu á Enter hnappinn, svo skrifar þú exit eins og áður sagði, Enter hnappur aftur og lokar Terminal.
Ræstu upp Safari og nú sérðu að það hefur bæst við nýr valseðill (menu) sem heitir Debug.
Neðarlega í Debug í User Agent finnur þú undirflipa sem hefur að geyma lista með nöfnum vafra svo sem Windows MSIE (Microsoft Internet Explorer).
Prófaðu að velja hann til að byrja með eða Mozilla. Þessir tveir skiptast á um að leysa mörg af þessum vandamálum.

