QXP : Slökkt á leturkau­paviðbó­tum, XT

Mar­gir eru enn að nota Quark og full snemmt að auglýsa jarðar­fö­rina. Útgáfa 7 er væn­tan­leg í lok ársins sem mun bæta úr ýmsum vankön­tum sem eru á núverandi útgáfu. Þótt fyrr hefði verið er óhætt að segja. Síðasti áratugur hefur einkennst af því að á meðan for­ri­tarar hjá Quark hafa eytt endalausum tíma í að hanna önnur for­rit sem dáið hafa drot­tni sínum jafnóðum og þau hafa komið út hafa þeir ekki sinnt flag­gskip­inu QuarkXPress.

Mjög er sótt að for­rit­inu af InDe­sign. Framtíðin mun leiða í ljós hvort ID gangi af Quark dauðu, en hafa ber í huga að gríðar­leg fjár­fest­ing lig­gur í kun­náttu fólks á þessu for­riti sem hefur um ára­bil verið eini alvöru valkos­turinn í umbrots­geiranum á makka.

Á letur­ráðstefnu sem ég fór á í Lon­don í febrúar var þessi nýja útgáfa kynnt og sérstak­lega með tilliti til letur­mála. Fyrir­lesarnir frá Quark lofuðu öllu fögru um bætta þjónustu við noten­dur í það minnsta í Eng­landi, en þeir höm­ruðu á því að stórá­tak væri í undirbúningi í þeim efnum. Það er auðvelt að margfalda það sem ekkert var.

Það markverðasta sem ég sá í nýju útgá­funni er að það verður hægt að nota Open­Type letur almen­ni­lega, það er að segja, opnað er fyrir aðgengi að þeim aukastö­fum sem eru í letrinu. hin­gað til hefur aðeins verið hægt að nál­gast 256 fyrstu sta­fina í letrinu. Þetta þýðir á sama tíma að for­ri­tið er orðið Uni­code samhæft og eru það góð tíðindi fyrir okkur hér á klakanum.

Sem sten­dur er aðeins hægt að nota QuarkX­Press 6.5 með breyttu letri á MacOsX á Íslandi. Ýmis konar van­dræði dúkka upp varðandi letur. ttfont map­pan sem ég fjal­laði um í öðrum pistli er eitt dæmi. Svipuð van­dræði og sú mappa getur valdið geta komið upp í tengslum við tvær viðbæ­tur sem eru í for­rit­inu. Nefni­lega að letur sem valið er komi ekki rétt út, Myr­iad letrið comi sem Courier eða eit­th­vað í þá áttina.

Viðbæ­turnar sem um ræðir eru:

Font­Down­load­ingXT

FontRe­trieveXT

Þes­sar viðbæ­tur virkar við innset­ningu á QuarkX­Press og eru til þess ætlaðar að kaupa letur á net­inu. Það þarf að slökkva á þeim í XTen­sion Man­ager. Leiðin er að fara í menu: Util­i­ties | XTen­sion Manager

Share