Pistlar : auglysingabok.is
Þegar maður hefur kíkt á islendingabok.is hvarflar að manni hvort ekki væri gaman að því ef einhver sérfróður setti upp svipaðan vef fyrir auglýsingabransann.
Nokkurs konar ættartré sem sýndi hvar hver var á hverjum tíma. Og þá einnig skyldar upplýsingar til að svala hnýsninni. Það er orðið æði flókið mál að fylgjast með hreyfingum manna milli auglýsingastofa og ég sé þetta fyrir mér sem hið mesta þarfaverk. www.sia.is takmarkar sig við SÍA stofurnar og hraðinn er meiri en svo að sá vefur haldist fullkomlega réttur nema einn, tvo mánuði í senn. Menn koma og fara úr einni stofu yfir í aðra, stofur eru sameinaðar, klofna í frumeindir eða rúlla yfir. Sumir fara út úr bransanum — en flestir koma nú aftur í einhverri mynd. Nýliðun á stofunum gæti verið einn þáttur sem svona vefur héldi utan um.
Eins myndi svona vefur sýna flakk viðskiptavinanna á milli stofanna. Hægt væri að rekja hvort tilteknir viðskiptavinir fylgdu ákveðnum mönnum á milli auglýsingastofa.
Ég sé fyrir mér að leit innan vefsins gæti komið með alls kyns skemmtilegan fróðleik. Finna til dæmis hver hefur verið viðriðinn flestar stofur, eða flestar kennitölur. Hver á metið í hinu og hver í þessu.
Þetta eru náttúrulega órar sem líklega verða aldrei að raunveruleika. Samt eru þessi atriði sem ég nefni hér á undan iðulega á vörum okkar sem störfum við þetta og einnig þeirra sem tengjast greininni. Svo eru alltaf einhverjar óstaðfestar fréttir í gangi, smá slúður kannski. Það vantar illilega áreiðanlegan upplýsingagjafa í þessum efnum… eða það finnst mér að minnsta kosti.
Það er eitt víst að sá sem héldi út ættartré auglýsingabransans hefði nóg að gera um þessar mundir.
(Áður birt á www.islenska.is 05.02.2003. Ég er að henda inn á þennan vef gömlum pistlum sem ég hef skrifað, aðallega á gamla www.islenska.is sem farinn er af netinu og ákvað að hafa þennan ekki á upphaflegu dagssetningunni meðal annars vegna greinar um auglýsingastofur sem birtist í Fréttablaðinu í gær. Flestar greinarnar fara hins vegar inn á upprunalegu dagssetningunni).

