Suitcase
Suitcase frá Extensis er annað tveggja leturstjórnunarforrita sem hægt er að mæla með fyrir fyrir þá sem þurfa að nota mikinn fjölda leturs að jafnaði.
Viðbætur fylgja með fyrir Adobe forritin, sem virkja sjálfkrafa letur sem er í skjölum þegar þau eru opnuð. Þetta er kallað Auto Activation og vantar illilega í mörg annars ágæt leturstjórnunarforrit.
Suitcase nær tökum á nánast öllu letri í tölvunni þannig að hægt er að stýra á tiltölulega einfaldan hátt hvaða letur er opið á þeim fjölmörgu stöðum sem letur getur leynst á. Þá er boðið upp á miðstýrða útgáfu, Suitcase Server sem er mjög hentug fyrir vinnustaði eins og til dæmis auglýsingastofur og þvílíka vinnustaði.
Ekki má gleyma Keywords & Styles. Það gefur möguleika á að leita í letursafninu að fyrirfram skilgreindu útliti leturs svo sem skriftarletri, grönnu letri eða hvað eina, en margir hafa lagt á sig gríðarlega vinnu við að flokka letrið hjá sér. Nú geta þeir hætt því bíst ég við.

