Suitcase stillingar
Suitcase er eitt besta forritið til þess að höndla með letrið á tölvunni. En það vefst fyrir mörgum að nýta það til fullnustu svo tölvulífið verði betra. Ein stilling og ein aðgerð geta breytt öllu.
Í fyrsta lagi: Farðu í Suitcase | Preferences. Efst í glugganum sem birtist stendur: Genaral | Activate | Preview text. Veldu Activate hnappinn. Í reitinum: Auto-activate tekurðu af hakið þar sem stendur: Auto-activate fonts.
Það sem þetta gerir, er að þetta kemur í veg fyrir að Apple forritin sem fylgja tölvunni séu að opna letur sem hefur verið gert óvirkt. (Sjá næsta lið). Athugið að þetta hefur ekki áhrif á Auto-activation sem stjórnað er af plöggunum sem Suitcase setur hjá Illustrator, InDesign, Quark og Photoshop.
Í öðru lagi: Nú er að fara í Tools í Menu: Þar er farið í: Manage System Fonts … . Settu bendilinn inn í gluggann og síðan: Slaufa-A (velja allt). Apply og svo Done.
Það sem þetta gerir er að Suitcase nær í allt kerfistengt letur í tölvunni sem það má og gerir það óvirkt. Það er því ekki að þvælast fyrir og valda árekstrum við það letur sem þú vilt nota. Eftir sem áður getur þú alltaf farið í möppurnar sem mynduðust í Suitcase og gert hvað af þessum letrum virkt sem þú vilt. Nauðsynlegt er að ræsa tölvuna eftir þessa aðgerð — ekki bara log-out / log-in.



