Font­Lab

Nafn for­ritsins er ýmist stytt í FL eða FLAB á umræðuko­rkum. Þeir sem hafa vanist að teikna letur í Fontog­ra­pher á kerfi 9 og eldra geta tekið gleði sína aftur. Font­Lab gerir allt sem Fontog­ra­pher (FOG) gat og miklu meira til. Ég skam­mast mín ekki þótt ég viðurkenni að það tók mig lan­gan tíma að læra á FL og ég er enn að læra á það. Hand­bókin, sem fyl­gir er rúm­lega 700 blaðsíðna PDF doðran­tur og ekki aðgengi­le­gasta rit sem ég hef augum barið. Þá er að nefna sem ókost hvernig skipunum er raðað í valseðlana en það er langt frá því að vera það sem mér finnst rökrétt. En for­ri­tið er vægast sagt öflugt og þar af leiðandi frábært. Teiknitólin virka mjög svipað og í Illus­tra­tor og Free­Hand með smá undan­tekningum þó.

Besta leiðin til þess að læra á for­ri­tið er að byrja ein­faldlega á því að hanna letur í því og leita svo lausna í hand­bókinni. Hægt er að kaupa prentaða útgáfu af hand­bókinni sér og ein­nig er komin út bókin Learn Font­Lab Fast eftir Leslie Cabanga sem er fín byrjendabók.

Önnur leið til þess að láta hugmyn­dir að letri verða að raun­veruleika getur líka verið að teikna letrið í Illus­tra­tor og fly­tja það inn í Font­Lab. Þetta er svona copy/paste aðferð en það þarf að hafa nokkrar still­ingar rét­tar til þess að þetta virki eins og til er ætlast.

Innan skamms kemur út útgáfa 5 af Font­Lab fyrir PC og síðar á árinu kemur svo makkaút­gá­fan. Ég fékk að prófa betaút­gáfu fyrir PC á letur­ráðsstefnu sem ég fór á í Lon­don í febrúar. Font­Lab­Stu­dio 5 eins og útgá­fan mun heita er meiri hát­tar uppfærsla þar sem höfun­darnir hafa tekið tillit til mar­gra óska noten­danna. Meðal annars raðað í valseðlana á nýjan hátt, og mikið aukið við ýmsa hjál­parþætti eins og við ClassKerning.

Mjög mikill stuðningur er við noten­dur á net­inu og er aðal­hö­fun­dur for­ritsins og annar til stöðugt að aðs­toða noten­dur og svara spurningum. For­ri­tið er nokkuð dýrt, enda gert fyrir tiltölulega lítinn og sérhæfðan markað. Mar­gari útgáfa Type­Tool er fáan­leg fyrir mun minna og dugir fles­tum og hægt að uppfæra síðar í FontLab.

Fyrsta ske­fið er að kynna sér Font­Lab

Share