CD eða DVD diskur fas­tur í drifi

Eject Gamla aðfer­ðin við að ná út diskum sem fastir eru í tölvunni var að endur­ræsa vélina og halda niðri músarhnapp­num á meðan vélin ræsist upp að nýju. Þar sem við viljum helst ræsa vélarnar sem sjjald­nast (ég ræsi sen­ni­lega vikulega að jaf­naði) væri kannski rétt að líta á aðra kosti í stöðunni. Hérna er mjög gagn­leg skipun sem hægt er að framkvæma í Ter­mi­nal ef diskur situr fas­tur í ein­hverju drifinu og sést jafn­vel ekki á skjáborðinu:

Ræstu Ter­mi­nal. (Appli­ca­tions > Utilities).

Skri­faðu: drutil tray eject

Þetta ætti að spýta disknum út.

Ef þetta virkar alls ekki er hægt að reyna að fara aðeins lengri leið:

Ræstu Ter­mi­nal. (Appli­ca­tions > Utilities).

Skri­faðu: drutil list Þetta kallar fram lista yfir þau diskadrif sem tengd eru.

Skri­faðu: drutil tray eject 1

Share