2003.39
Mig minnir að íslenskar kýr segi mö, eins og í vísunni með Ómari Ragnarssyni hér forðum daga…en kanski var hann bara að syngja um flámæltar austfirskar kýr.
Nú segja þær víst muu. Að minnsta kosti í þessum nýju auglýsingum sem væntanlega er ætlað að reyna að auka kúamjólkurdrykkju Íslendinga.
Nýlega kepptu nokkrar auglýsingastofur um hver hreppti þennan pakka. Samkeppnin fór fram á líkan hátt og Friðrik Eysteinsson lýsir í ársriti SÍA og samkvæmt því borga viðskiptavinir þeirra sem ekki fengu brúsann. Vissulega athyglisvert.
Hvað um það. Athyglisverðara finnst mér sú umræða sem fram fer manna á milli og á umræðuvefum, t.d. http://www.icelandicnationalteam.com/lesa.php?id=1443
Þar er tíundaðir margir liðir sem menn sjá samlíkingu við skyldar afurðir erlendis.
Lagið tekið af www.fjallfil.com, og auglýsingin mjög lík myndbandinu við lagið Satisfaction með Benny Benassi.
Það er kannski að komast í tísku að nota sterkar tilvitnanir samanber plötuumslagaauglýsingar Landsbankans. Það hefur alltaf tíðkast en nú upp á síðkastið er á mörkunum að hægt sé að tala um tilvitnanir. Kóperingar eru manni eiginlega ofar í huga.
Ég varð fyrir miklum vonbrigðum með þessa herferð og tími engri fjöður á Muu.

