2003.06

Ljós­glæ­tur í skam­mdeginu… eit­th­vað sem við flest getum á okkur bætt.

Hön­nunarkeppni FÍT 2003 (www.loremipsum.is) er ein af þes­sum glæ­tum. Í þes­sari keppni er keppt og dæmt í mör­gum flokkum sem ekki rýmast undir hatti ÍMARK kepp­nin­nar. Það er helst undan því að kvarta þó hve stut­tur fyrir­vari er til að senda inn gögn til kepp­nin­nar og reyn­dar var ski­ladagur beint ofan í skilin í ÍMARK kepp­n­ina. Kannski er þetta þó bara allt í lagi. Menn eru þá kannski bara fer­skari í minni um hvað var verið að gera á síðasta ári.

Það er afleitt hve þessi keppni fær litla umfjöl­lun út á við. Ég get að vísu ekki alveg ful­lyrt það í þetta skip­tið þar eð ég var ekki á land­inu þegar úrslit voru kun­ngerð. En þan­nig var það að minnsta kosti í fyrra. FÍT hefur stóran hluta auglýsinga­manna innan­borðs og ætti ekki að vera í mik­lum van­dræðum með að kynna sig betur út á við með þekk­tum brel­lum. Vonandi verður það haft í huga í framtíðinni.

Yfir­lit yfir vin­ning­shafa og grip er hægt að sjá á vef FÍT.

Ekki síðri umfjöl­lun er á vef www.icelandicnationalteam.com. Og þar eru líka myn­dir frá atburðinum. Þetta er afbragðsve­fur og fjal­lað um flest sem áhuga kann að vekja hjá hön­nuðum. Mig lan­gar til að minna fólk á að kíkja á þen­nan vef og að leg­gja orð í belg. Ekki veitir af að reyna að örfa umfjöl­lun um hön­nun. Inntakið er sem sagt mjög gott. Ég hefði búist við aðeins flot­tari hön­nun á vefnum en hann virkar vel og auðvelt að rata um svæðið.

Ég gef FÍT þrjár fjaðrir fyrir hönnunarkeppnina.

www.icelandicnationalteam.com fær þrjár fyrir frábært fram­tak og gott inntak vefs.

Viðbót 12.05.2005: Því miður er icelandicnationalteam.com ekki lengur á meðal vor.

Share