2002.53

Talsvert er um frum­sýningar á auglýsingum síðustu daga hvers árs og jafn­vel síðustu auglýsin­gatí­mum ársins í sjónvarpi.

Auðvi­tað rökrétt í ljósi þess að þá er gul­lið tæk­ifæri til að ná beinu sam­bandi við nánast alla þjóðina á einu bretti. Svo er ekki verra fyrir auglýsin­gasto­furnar að koma að þó ekki nema væri einni birtingu auglýsin­gar svo hún verði gjald­geng í næstu ÍMARK keppninni.

Það sem ég ætlaði hins vegar að fjalla örstutt um eru plaköt Íslen­sku ópe­run­nar að undan­förnu. Í haust bir­tust mjög fín plaköt og með­fyl­g­jandi auglýsin­gar. Þemað var framíköll áhor­fenda ópera. Eða öllu hel­dur leiðbeiningar til áhor­fenda um hvernig þau eigi að vera samkvæmt ítal­skri mál­fræði, bravo fyrir góðan karl­söng, brava til kvenkyn­shyllingar og svo framvegis. Plakötin voru hreint til sóma. Rotis letur og fal­l­e­gir jarðl­i­tir. Ein­nig er unnið áfram með sama þema í vef­borðum með skemmti­legum teikningum á ágætri og efnis­ríkri vef­síðu ópe­run­nar, www.opera.is.

Nú eru komin ný plaköt fyrir væn­tan­lega sýningu á Mac­beth. Hægt er að líta á þau sýningar­glugga í Ingólf­sstæt­inu. Það sem er sérstak­lega skemmti­legt er að þetta eru fjögur sjálf­stæð plaköt sem teng­jast þó saman með orðinu Mac­beth. Sjón er sögu ríkari og upplagt að kíkja á þetta. Ein bestu plaköt ársins að mínu mati. Þrjár fjaðrir í hat­tinn fyrir grunnhugmynd og leturnotkun. Vonandi er ein­hver til í að senda inn svar hér um hver hafi han­nað plakötin.

Share